Kristinn Árni Egilsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Árni Egilsson húsasmíðameistari í Rvk fæddist 29. júní 1950 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Egill Árnason vélstjóri, f. 18. júní 1911 á Seyðisfirði, d. 9. janúar 1976, og kona hans Guðrún Magnúsína Kristjánsdóttir frá Hvanneyri, húsfreyja, f. 2. janúar 1919, d. 15. apríl 1994.

Börn Magnúsínu og Egils:
1. Kristján Egilsson forstöðumaður fiska- og náttúrugripasafnsins í Eyjum, f. 5. júlí 1939 á Hvanneyri.
2. Egill Egilsson húsasmíðameistari, þjónustufulltrúi í Eyjum, f. 23. nóvember 1947 á Heiðarvegi 42.
3. Kristinn Árni Egilsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 29. júní 1950 á Heiðarvegi 42.
4. Heiðar Egilsson járnsmiður í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.
5. Hrönn Egilsdóttir leikskólastjóri í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.

Kristinn Árni eignaðist barn með Ástu 1974.
Hann eignaðist barn með Ásdísi 1983.
Kristinn Árni býr í Rvk.

I. Barnsmóðir Kristins Árna er Ásta Guðmunda Eydal Ástþórsdóttir skrifstofukona, f. 7. mars 1955.
Barn þeirra:
1. Elvar Freyr Kristinsson, f. 7. október 1974 í Eyjum.

II. Barnsmóðir Kristins Árna er Ásdís Baldursdóttir frá Miðdölum í Dalas., líffræðingur, f. 26. september 1961.
Barn þeirra:
2. Sindri Kristinsson, f. 5. ágúst 1983 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.