Ásta Ástþórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Guðmunda Eydal Ástþórsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 7. mars 1955.
Foreldrar hennar Ástþór Eydal Ísleifsson vélstjóri, f. 9. júlí 1933, og kona hans Ester Zóphoníasdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 26. október 1935, d. 18. apríl 2021.

Börn Esterar og Ástþórs:
1. Ásta Guðmunda Eydal Ástþórsdóttir skrifstofumaður, f. 7. mars 1955. Barnsfaðir hennar Kristinn Árni Egilsson. Maður hennar Kristján Þór Kristjánsson.
2. Óli Rúnar Ástþórsson framkvæmdastjóri, f. 13. janúar 1957. Fyrrum kona hans Anna María Snorradóttir. Sambúðarkona hans Helga Sigurðardóttir.
3. Ísleifur Ástþórsson vélvirki, f. 26. mars 1958. Kona hans Sigrún Ólöf Sigurðardóttir.
4. Friðrik Bergþór Ástþórsson rafvirki, f. 23. september 1962. Kona hans Guðrún Eylín Magnúsdóttir.

Ásta eignaðist barn með Kristni Árna 1974.
Þau Kristján Þór giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Reykhólahreppi í A-Barð. 1986.

I. Barnsfaðir Ástu er Kristinn Árni Egilsson húsasmíðameistari, f. 29. júní 1950.
Barn þeirra:
1. Elvar Freyr Kristinsson, f. 7. október 1974 í Eyjum.

II. Maður Ástu var Kristján Þór Kristjánsson tæknifræðingur, framkvæmdastjóri, kennari, f. 10. desember 1941, d. 29. mars 2017.
Barn þeirra:
2. Ester Sif Kristjánsdóttir, f. 24. mars 1982.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.