„Högni Sigurðsson (Vatnsdal)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 39: Lína 39:

Högni stundaði ýmis störf á unglingsárum þar til hann hóf nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Þaðan lauk hann kennaraprófi árið 1895. Hann fluttist á Norðfjörð í framhaldinu og þar var hann með stundakennslu og bauð þeim sem vildu upp á kennslu. Einng reri hann til sjós á sumrin frá Norðfirði. Ýmislegt þurfti hann að gera til þess að framfleyta fjölskyldu sinni og þurfti hann selja úr og harmonikku til þess að redda málunum. Högni var barnakennari í Vestmannaeyjum árin 1904-1908. Barnakennslan var aðeins lítill hluti af því sem að hann tók sér fyrir hendur. Hann var í landbúskapi, útgerð og við íshúsvörslu hjá [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélagi Vestmannaeyja]]. Högni var fyrsti vélstjóri sem keyrir frystivél í Eyjum. Hann fór til Danmerkur í nám, og var það til þess að Vestmannaeyingar gátu fryst vatn og vörur. Þar áður þurfti að treysta á frosið vatn í [[Vilpa|Vilpu]] og [[Herjólfsdalur|Herjólfsdalstjörn]], börnum til mikillar mæðu. Í íshúsinu var beita kæld og höfð tilbúin til veiða. Högni var hagmæltur og gerði mikið að því að kveða ljóð. Hann samdi um margt og verður eitt kvæði birt hér til hliðar sem hann samdi um eyjuna. Högna var mikið annt um Vestmannaeyjar og tók þátt í ýmis konar menningarstarfi. Hann var kosinn til setu í [[fyrsta bæjarstjórn Vestmannaeyja|fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar]], en hann sat á fjórum af þeim sjö flokkum sem buðu fram til kosninganna.

=Úr fórum Árna Árnasonar=

::::::Gullskreyttur sem general
::::::Eftir [[Högni Sigurðsson (Vatnsdal)|Högna Sigurðsson í Vatnsdal]]

::::::  [[Stefán Árnason]]
::::::Gullskreyttur sem general,
::::::góðkunnur frá [[Mandalur|Mandal.]]
::::::Er í leynum allsstaðar,
::::::en alltaf laus við skandal.
::::::Þegar bófar brjótast inn,
::::::bæði á nóttu og degi,
::::::yfirþjóninn ávallt finn
::::::uppi á [[Kirkjuvegur|Kirkjuvegi]].
:::::: [[Gísli Finnsson]]
::::::Mikið hefir maður reynt
::::::meðal vor á jörðu,
::::::ekið bíl og blásið horn
::::::og braski lent í hörðu.
::::::Munnhörpur og mandólín
::::::mönnum vildi selja.
::::::Það er ekki heiglum hent
::::::hörmung hans að telja.
:::::: [[Einar ríki|Einar Sigurðsson]]

:::::: (Var að byggja neðanjarðaríshúsið).
::::::Maður nokkur byggði bæ
::::::bjargföstum á steini
::::::og að ári aðra hæð
::::::og undirgang í leyni.
::::::Nú á prjónum hefir haft
::::::húsinu að skjóta
::::::upp á háan [[Heimaklettur|Heimaklett]],
::::::hárunum til bóta.
:::::: [[Baldur Ólafsson (bankastjóri)|Baldur Ólafsson]]

:::::: (Var þá með umboð fyrir Egilsöl og Bláa borðann).
::::::Maður nokkur býr á [[Borg]]
::::::býsna toginleitur,
::::::því að norskum eplum af
::::::enginn verður feitur.
::::::Líka reyndi Egilsöl,
::::::ekkert bættist hagur.
::::::Blái borðinn bestur er,
::::::en Baldur er jafn magur.
:::::: [[Jóhann Gunnar Ólafsson]] bæjarstjóri

:::::: (þá í deilum við [[Gróa Einarsdóttir|Gróu]]).
::::::Borgarstjórans ljúfu lund
::::::létt er mjög að særa.
::::::Gróa hefir gert það nóg,
::::::grimm var mjög sú skæra.
::::::Frúin vildi ei fara burt
::::::fyrir [[Kirkjuvegur|Kirkjuvegi.]]
::::::Veslings Gunnar bað og bauð,
::::::en bænir tjáðu eigi.
:::::: [[Ólafur Á. Kristjánsson|Ólafur Kristjánsson]]
::::::Óli nokkur arkitekt
::::::alveg hætti að smíða.
::::::Það er ekki undarlegt,
::::::þó eitthvað yrði að bíða.
::::::Núna selur náttpotta,
::::::netagarn og tjöru.
::::::Það kvað þykja feikna fínt
::::::að fást við þessa vöru.
:::::: [[Sigurbjörn Kárason (Presthúsum)|Sigurbjörn Kárason]]
::::::Kárason er kvensamur,
::::::kætir ungar meyjar.
::::::Vinnukonur veiðir hann
::::::víða um þessar eyjar.
::::::Yngismeyjar afgreiðir
::::::með undirkjóla og sokka.
::::::Ræl og tangó virkta vel
::::::vinurinn kann að skokka.
:::::: [[Sigurður Guttormsson (Sólnesi)|Sigurður Guttormsson]]
::::::Siggi Gutt er gáfaður
::::::og gefinn fyrir móðinn,
::::::unni funkis, þýskri þjóð,
::::::Þorsteins kunni ljóðin.
::::::En kapítal og krónujakt
::::::kvað hann djúpt í fallinn.
::::::Klárast þetta kom í ljós,
::::::er keypt hann [[Sólnes|Thomsens hjallinn.]]
:::::: [[Leifur á Bakka]]
::::::Leifur málar hænsnahús
::::::höfðingjanna í bænum.
::::::Fimur er í fjallgöngum.
::::::(hér vantar ljóðlínu )
::::::Ekur stiga út um bæ
::::::einhver var að hlæja.
::::::Sá hlær best sem síðast hlær,
::::::en vi estas gæja.
::::::Siggi Jónsson (orðtak: eins og hundarnir á  hinum bæjunum).
::::::Góðar vörur fást í Fram,
::::::fangalína og krani.
::::::Siggi Jóns er sagður þar
::::::sífellt vera á spani,
::::::sem hundarnir á hinum bæ
::::::í hverju máli geltir,
::::::og sannfæringin síviljug
::::::síðasta manninn eltir.
::::::Skynji hani hanagal.
::::::hann fer líka að gala
::::::eins vill Siggi í umræðum
::::::í öllum málum tala.
::::::::Viðlag:
::::::Það skeður enn, það skrafa menn,
::::::það skeður alla tíma,
::::::það skeður nær það skeður fjær,
::::::það skeður líka í síma.
::::::það skeður æ um sveit og sæ,
::::::það skeður líka á fundum,
::::::það skeður nú og skilur þú,
::::::það skeður öllum stundum.
:::::: [[Jóhannes Long]] Jóhannesson
::::::Strákur nokkur austan að
::::::öllu góðu kunnur, :
::::::umboðsmaður útsmoginn,
::::::andans mesti brunnur.
::::::Áður seldi Akra smjör,
::::::öl og kaffibæti.
::::::Gefjun hefir græjað hann
::::::gott í kaupmanns sæti.
:::::: [[Kjartan Jónsson (Búastöðum)|Kjartan Jónsson]], [[Búastaðir|Búastöðum]]
:::::: [[Sjóveitan|Sjóveituna]] situr við
::::::sæll í öðrum heimi.
::::::Óttalegur andafans
::::::oft er þar á sveimi.
::::::Kjartan unir kátur þar
::::::í kuldahríð og gjósti,
::::::því átján pakka af opelskro
::::::andar sendu í pósti.
::::::[[Guðmundur Jónsson (skósmiður)|Guðmundur skósmiður Jónsson]]
::::::(Var þá nýrekinn úr stjórn [[Kaupfélag Alþýðu|Kaupfélags Alþýðu]].
::::::Guðmundur er góðmenni,
::::::glaður öllum stundum.
::::::Alltaf sést hans blíða bros,
::::::en best á kratafundum.
::::::Kaupfélagi kratanna
::::::kom hann upp með Jónum.
::::::Núna hefir hugur hans
::::::hallast mest að skónum.
:::::: [[Óskar Bjarnasen]]
:::::: (Vantaði alltaf í nefið)
::::::Alltaf hljóma orðin söm
::::::á okkar skemmtifundum,
::::::þegar blíður Bjarnasen
::::::byrjar ræður stundum.
::::::Lokar augum, hóstar hátt,
::::::hábölvað er kvefið.
::::::Geturðu ekki, greyið mitt,
::::::gefið mér í nefið.
:::::: [[Gísli rafvirki]],
:::::: (kallaður Pexikon,

::::::fékkst við loftnetauppsetningu).
::::::Uppi á strompum allsstaðar,
::::::einn í ströngu jobbi.
::::::Lýður horfir hugfanginn,
::::::heldur að þar sé [[Þorbjörn Arnbjörnsson|Tobbi.]]
::::::Karlar hafa kvartað mjög,
::::::kjöt úr strompum týnist.
::::::Poka hefir Pexikon
::::::og plokkar þegar sýnist.

== Myndir ==
== Myndir ==

Leiðsagnarval