Lína 105: |
Lína 105: |
| Við hættum að róa 6. maí. Höfðum þá farið 11 róðra með línuna og tapað samtals 800 önglum. En aflinn þennan stutta tíma nam samtals 5596 þorskum og 1416 ýsum. Auk þess fengum við talsvert af lúðu og skötu.
| | Við hættum að róa 6. maí. Höfðum þá farið 11 róðra með línuna og tapað samtals 800 önglum. En aflinn þennan stutta tíma nam samtals 5596 þorskum og 1416 ýsum. Auk þess fengum við talsvert af lúðu og skötu.

| Frá því að við drógum út og til 10. apríl, að við hófum veiðarnar með línuna, vorum við búnir að fá 218 í hlut. Gera má ráð fyrir, að lítið hefði við það bætzt, eftir því sem aflinn reyndist hjá hinum, sem stunduðu eingöngu færi til vertíðarloka. | | Frá því að við drógum út og til 10. apríl, að við hófum veiðarnar með línuna, vorum við búnir að fá 218 í hlut. Gera má ráð fyrir, að lítið hefði við það bætzt, eftir því sem aflinn reyndist hjá hinum, sem stunduðu eingöngu færi til vertíðarloka. |

| ==Bjargi bylt af brautu==

| ''Leiðin rudd. Vertíðina 1898 notuðu öll skip í Eyjum línu. Beitan var gota og ljósabeita. Sumir skáru í vanþekkingu sinni alla krókana af línunni til þess að geta greitt hana.''

| Næstu vertíð, 1898, voru öll skip, sem hér gengu þá á vetrarvertíðinni, útbúin með lóð. Á hverju bjóði voru 200 krókar og milli tauma 2—2½ alin (126—157 sm).

| Átt-æringar réru með 8 bjóð og minni bátar svo minna að tiltölu. Beitan var jafnan þorsk- og ýsuhrogn, ef þau voru til, og svo ljósabeita með.

| Bezta ljósabeitan þótti lúða og steinbítur.

| Fyrst í stað voru margir lengi að beita, t.d. gamlir menn, og það bar við, að við hinir yngri, sem vorum orðnir vanir lóðinni, gerðum okkur gaman að sumum körlunum.

| Ýmsar sagnir gengu um „samskipti“ sumra karlanna við línuna. — Tveir, sem beittu saman, höfðu fengið flækju. Þá stóðu þeir ráðalausir, þar til þeir sáu það ráðlegast að skera alla krókana af flækjunni.

| Eitt sinn sá ég þrjá vera að beita sama bjóðið úr stokk. Einn tók krókana úr trénu, annar krækti beitunni á önglana og sá þriðji lagði þá niður í bjóðið. Dýr mundi hún þykja slík beitning í dagvinnu, hvað þá í næturvinnu!

| Vertíðina 1898 var þó ekki einvörðungu notuð lóð. Svo var það einnig næstu vertíðir. Þessa vertíð (1898) hóf ég róðra 22. febr. Þá byrjaði ég með línuna og hélt því áfram, þangað til loðnan kom um miðjan marz. Þá tókum við handfærin um tíma.

| Framan af vertíðinni var tregur fiskur á lóðina og þar af leiðandi lítið um hrogn til beitu.

| Svona reyndist þetta næstu vertíðir, að fiskur var tregur á lóð, þangað til kom fram í apríl. Og eftir að loðnan tók að ganga, þýddi sjaldan að nota lóðina. Þetta mun þó hafa stafað af því fyrst og fremst, hversu einhæf beitan var. Hér vantaði síld, sérstaklega fyrri hluta vertíðar. Þó fiskaðist stundum mjög vel „Undir Sandi“ og á [[Állinn|Álnum]] á lóðina, eftir að loðna kom, en alltaf aflaðist þá meira af ýsu en þorksi.

| Fyrstu vertíðarnar eftir að lóð varð hér aðalveiðarfærið, var helzta veiðisvæðið frá heimamiðum austur að Dýpri-Mannklakk og [[Leddarforir|Ledd]], sunnan við [[Rófa|Rófu ]] og allt austur að [[Sandahraun]]i.

| Þegar fram í sótti og bátum fór fjölgandi, fór sjósókn vaxandi, — ekki sízt eftir að bátar með færeyska laginu voru almennt notaðir. Þá tóku menn að sækja suður að [[Súlnaskersklakkur|Súlnaskersklakk]]. Hann var um tíma mjög ásótt fiskimið línubáta.