„Blik 1974/Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum, I. hluti“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Lína 773: Lína 773:
== 4. Kaupfélagið Fram ==
== 4. Kaupfélagið Fram ==

Það gerðist í nóvember 1916 að 27 útvegsbændur í Vestmannaeyjum ræddust við í eilitlum salarkynnum í byggingu ísfélags Vestmannaeyja við Strandstíg. Þeir ræddu um stofnun kaupfélags til sóknar og varnar í hagsmunamálum sínum og útvegs síns, til sóknar og varnar í daglegum viðskiptum sínum og atvinnurekstri um vörukaup heimilanna og sölu sjávarafurða. Sumir þeirra voru hvassyrtir og brýndu röddu, nefndu afætur og okrara, einokun og alveldi, arðsugur og illþýði. Aðrir fóru rólega í sakirnar, bentu á kaupfélagið Bjarma, sem þá hafði verið starfrækt í 2 ár útvegsbændum þar til ómetanlegs hagræðis. En þessir bændur vildu ekki vera þar í félagsskap þó að hann væri nýtur og góður. Enda ekki alveg ánægðir eða yfir sig hrifnir af forustunni í þeim samtökum. Þeir voru sér um sefa, þessir framsæknu dugnaðarþjarkar og vinnuþrælar, sem gert höfðu út vélbáta frá fyrsta ári vélbátaútvegsins, sumir þeirra að minnsta kosti. Þeir vissu bezt, hvar skórinn kreppti að um verkun og geymslu sjávarframleiðslunnar. Þá skorti stakkstæði til þess að þurrka saltfiskinn á að sumrinu. Þá skorti. og þá skorti. Úr þeim skorti yrði ekki bætt nema með samtökum.
Þarna á íshússfundinum kusu þessir útvegsbændur þriggja manna nefnd, sem ætlað var það hlutverk að ráða framkvæmdastjóra, sem koma skyldi félaginu á stofn, - vera með í ráðum um lagasmíð og húsakaup, skipulag verzlunar og aðrar verklegar framkvæmdir.
Þrír af skeleggustu forgöngumönnum hugsjónarinnar voru kosnir í þessa nefnd, þeir Högni Sigurðsson í Vatnsdal, Arni Jónsson í Görðum og Jón Jónsson í Hlíð. Allir voru þeir úr hópi kunnustu útvegsbænda í kauptúninu.
Vissulega unnu þeir ötullega að framkvæmdunum. undirbúningi fyrirtækisins. -
Eftir nokkra daga eða 20. nóvember (19161 kvaddi nefndin félaga sína á fund. Sá fundur var haldinn í verzluninni Vísi, þar sem Valdimar kaupmaður Ottesen hafði verzlað um skeið. (Það hús hlaut síðar nafnið Þingvellir). Á fundi þessum hafði Högni Sigurðsson orð fyrir nefndarmönnum.
Ýmislegt hafði nefndin innt af hendi til eflingar hinu væntanlega kaupfélagi. Ásókn útvegsbænda til þess að fá að vera með í félaginu hafði reynzt mikil, svo að nær fjörutíu sátu fund þennan. Högni og þeir nefndarfélagar höfðu þá þegar fest kaup á húseigninni Vísi handa félaginu og innheimt kr. 160,00 af hverjum þeim, sem æskti að vera stofnandi félagsins og starfandi félagsmaður. Og þetta fé hafði nefndin þá þegar greitt upp í andvirði verzlunarhússins, en kaupverð þess var kr. 23.000,00. Auðvitað hafði nefndin haft samráð við aðra framámenn hugsjónarinnar um stofnun félagsins utan fundar og um framkvæmdir þessar.
Fundurinn lýsti yfir ánægju sinni með húskaupin og aðrar gjörðir nefndarinnar, sem líka hafði lagt drög að því að ráða kaupfélaginu framkvæmdastjóra. Jón Hinriksson, verzlunarstjóri í Garðinum, við Garðsverzlun, hafði gefið kost á sér til þessa starfs. Starfssamningurinn milli hans og kaupfélagsstjórnarinnar var undirritaður í desember 1916.
Hér hlýt ég að gera nokkra grein fyrir hinum nýráðna framkvæmdastjóra.
Jón Hinriksson, framkvæmdastjóri, var Húnvetningur, fæddur að Ósum á Vatnsnesi 23. maí 1881. Hann lauk kennaraprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og gerðist síðan barnakennari í Firðinum.
Jafnframt barnakennslunni annaðist Jón Hinriksson bókhald Brydeverzlunarinnar í Hafnarfirði. Hann var síðan aðalbókari hjá þeirri verzlun á árunum 1911-1913.
Árið 1910 lézt J. P. T. Bryde kaupmaður, sem rekið hafði einokunarverzlunina gömlu í Vestmannaeyjum frá dánardægri föður síns 1879 til dauðadags.
Hvað svo um leifar þessarar gömlu einokunarverzlunar í Vestmannaeyjum eftir fráfall eigandans?
Ekkja hans, Þóra Ágústa (f. Brandt) fékk leyfi til að sitja í óskiptu búi. Þegar gamli einokunarkaupmaðurinn andaðist, var Ólafur Arinbjarnarson verzlunarstjóri Garðsverzlunar í Eyjum. Hann lézt árið 1913.
Eftir fráfall hans rak Herluf Bryde, sonur J. P. T. Bryde, verzlunina, þar til hún var lýst gjaldþrota. Þá var verzlunarfyrirtæki þetta, - Garðsverzlun í Vestmannaeyjum, einokunarverzlun Brydeanna þar frá árinu
1844, - gerð upp af þar til skipaðri skilanefnd. Hún seldi síðan firmanu H. P. Duus verzlunarstaðinn Garðinn og er afsalsbréfið dagsett 16. marz 1917. Aðaleigandi H. P. Duus-firm-ans þá var Ólafur kaupmaður Ólafsson Sveinbjarnarsonar i Keflavík Ólafssonar.
Eftir fráfall Ólafs verzlunarstjóra Arinbjarnarsonar réðst Jón Hinriksson til Vestmannaeyja og gerðist aðalbókari Brydeverzlunar þar eða Garðsverzlunar og að nokkru leyti verzlunarstjóri. Þegar svo Duusfirmað keypti fyrirtækið, gerðist Jón Hinriksson verzlunarstjóri. Og svo liðu aðeins þrír mánuðir. Þá gerðust „kaupin á eyrinni".
Og svo höldum við áfram með sögu Kf. Fram í Eyjum.
Afráðið var, að fimm menn skyldu skipa stjórn hins nýja kaupfélags. Og félagsmenn voru sammála um að kjósa strax stjórnina til starfa með kaupfélagsstjóranum, enda þótt eftir væri að semja félaginu lög og samþykkja þau.
Á fundinum kom fram munnleg tillaga um stjórnarmenn. En hún var felld. Félagsmenn vildu hafa stjórnarkjörið skriflegt og leynilegt. Var þá kjörseðlum úthlutað.
Þessir Eyjamenn hlutu kosningu í fyrstu stjórn Kaupfélagsins Fram: Jón Guðmundsson í Breiðholti við Vestmannabraut, síðar búandi að Mosfelli; Árni Jónsson, Görðum: Högni Sigurðsson, Vatnsdal; Sigurjón Jónsson á Hrafnagili  (síðar í
Víðidal; sjá Blik 1973, bls. 180), og Jón Jónsson, Hlíð.
Eftir hálfan mánuð eða 5. desember (1916) var siðan aðalstofnfundur Kaupfélagsins Fram haldinn í húseigninni Vísi, sem var nú orðin eign félagsins samkvæmt framansögðu. Fund þennan sátu 42 útvegsbændur eða félagsmenn, eins og þeir eru kallaðir í fundargjörð. Þarna voru kaupfélaginu samþykkt lög og framtíðarmálin rædd og skýrð. Hinn nýráðni kaupfélagsstjóri, Jón Hinriksson, gerði það að tillögu sinni, að hver félagsmaður greiddi kr. 500,00 í stofngjald í félagssjóð, og hefðu þeir allir lokið þeirri greiðslu fyrir 1. júní árið eftir (1917) eða að sex mánuðum liðnum. Tillaga þessi var mikið rædd á fundinum og samþykkt að lokum mótatkvæðalaust eða með öllum greiddum atkvæðum.
Hin fyrstu lög Kf. Fram voru í 21. grein. Hér verður aðeins drepið á helzta efni þeirra.
Tilgangur Kaupfélagsins Fram:
a) að safna stofnsjóði, - veltufé, -með framlagi félagsmanna til þess að geta ávallt keypt útlendan varning, aðallega gegn greiðslu út í hönd.

b) að safna varasjóði til þess að tryggja framtíð félagsins.

c) að fækka svo sem auðið er öllum óeðlilegum milliliðum í verzlunarviðskiptum.

d) að útvega félagsmönnum sem beztar vörur við svo hagstæðu verði, sem unnt er, og selja afurðir þeirra við svo háu verði, sem kostur er.

e) að auka þekkingu félagsmanna einkum á því er snertir samvinnufélagsskap, verklegar framkvæmdir, vöruvöndun o. fl.

Félagsmenn ábyrgjast allir skuldir félagsins in solidum (í samábyrgð). Af þeim, sem panta vörur í félaginu, getur framkvæmdarstjóri eða stjórn félagsins heimtað tryggingu.
Stofnfénu má verja til húsakaupa, byggingarframkvæmda, vörukaupa, flutninga og hvers annars, sem samrýmist tilgangi félagsins.
Allar vörur, sem félagið útvegar einstökum félagsmönnum og þeir veita móttöku og greiða á tilteknum tíma,skulu þeir fá með minnsta álagi, er stjórn félagsins sér sér fært að leggja á vörurnar, hvort sem varan er innlend eða útlend.
Enginn getur selt öðrum hluta sinn í félaginu nema með samþykki allrar stjórnarinnar. Enginn félagsmaður getur sagt sig úr félaginu, nema hann hafi tilkynnt stjórninni það með árs fyrirvara.
Þannig var þá Kaupfélagið Fram sambland af pöntunarfélagi, hlutafélagi og kaupfélagi, sem rak opna verzlun eins og kaupmennirnir í kauptúninu.
Að lokum gerði framkvæmdastjórinn Jón Hinriksson þetta að tillögu sinni: „Ef einhver félagsmaður verður uppvís að því að vinna á móti félaginu, annað hvort til orða eða verka,  er  hann  félagsrækur  án

83

breytingar

Leiðsagnarval