Jóna G. Jónsdóttir (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Guðrún Jónsdóttir frá Loðmundarfirði, húsfreyja fæddist 4. desember 1885 í Stakkahlíð í Loðmundarfirði og lést 8. nóvember 1972.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 5. mars 1846, d. 30. maí 1925 og kona hans Sigurbjörg Metúsalemsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1859, d. 30. júní 1936.

Jóna var með foreldrum sínum, flutti með þeim úr Loðmundarfirði til Seyðisfjarðar 1886, var með þeim á Brimnesi þar 1890, var hjú á Brimbergi á Vestdalseyrarsókn 1901.
Þau Helgi giftu sig, bjuggu á Hverfisgötu 58B í Reykjavík við fæðingu Sigurjóns 1907. Þau bjuggu á Sigurðarstöðum í Vestdalseyrarsókn á Seyðisfirði 1910.
Þau fluttu til Eyja 1917 með fimm börn sín, eignuðust þrjú börn í Eyjum, en síðasta barnið fæddist andvana. Þau bjuggu í Lambhaga við Vesturveg 19.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1930, bjuggu við Baldursgötu 12, en síðast í Ánanaustum S-1.
Helgi lést 1952.
Jóna bjó síðast við Eiríksgötu 11. Hún lést 1972.

I. Maður Jónu Guðrúnar var Helgi Backmann Ingimundarson frá Miðey í A.-Landeyjum, skipstjóri, síðar verkamaður, f. 17. maí 1872, d. 27. nóvember 1952.
Börn þeirra:
1. Sigurjón Bachmann Helgason, f. 8. nóvember 1907 á Hverfisgötu 58B í Reykjavík, síðast í Kópavogi, d. 16. júní 1977.
2. Árni Ingimundur Helgason Bachmann sjómaður, vélstjóri, síðast í Njarðvík, f. 23. september 1909 á Seyðisfirði, d. 18. febrúar 1988.
3. Sigurður Þórarinn Helgason Bachmann bifreiðastjóri í Keflavík, f. 25. júlí 1914 á Seyðisfirði, d. 10. október 1994.
4. Svanhvít Helgadóttir Smith húsfreyja í Reykjavík, f. 18. október 1915 á Seyðisfirðir, d. 30. október 1993.
5. Ólafía Helgadóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 13. júlí 1917 á Seyðisfirði, d. 3. október 1971.
6. Þóra Hansína Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 25. nóvember 1920 í Lambhaga, d. 25. júní 1992. Maður hennar Baldur Svanhólm Ásgeirsson.
7. Sigurður Hermann Helgason, síðast í Reykjavík, f. 20. apríl 1922, d. 5. ágúst 2000.
8. Andvana drengur, f. 21. ágúst 1924.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.