Jón Guðmundur Valgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Guðmundur Valgeirsson, frá Þverspyrnu í Hrunamannahreppi, lögfræðingur, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra fæddist 6. maí 1968.
Foreldrar hans Valgeir Jónsson bóndi á Þverspyrnu í Hrunamannahreppi, f. 14. júní 1939, og Guðrún Kristín Þorsteinsdóttir, húsfreyja, bóndi, f. 1. júní 1936.

Þau Guðbjörg hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Ásaveg 1, búa nú á Hellu.

I. Sambúðarkona Jóns Guðmundar er Guðbjörg Viðarsdóttir, húsfreyja, nuddari, íþróttakennari, f. 19. maí 1971.
Börn þeirra:
1. Nói Mar Jónsson, f. 31. ágúst 2000.
2. Una Bóel Jónsdóttir, f. 17. febrúar 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.