Jóhann Maríus Einarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Maríus Einarsson sjómaður, trésmiður fæddist 19. febrúar 1884 á Auðnum í Kálfatjarnarsókn á Reykjanesi og lést 11. mars 1974.
Foreldrar hans voru Einar Einarsson verkamaður í Reykjavík og á Grund í Hafnarfirði, d. 29. mars 1909 og barnsmóðir hans Halldóra Álfheiður Ásgrímsdóttir, síðar húsfreyja á Flankastöðum, Kvíabóli og Sléttubóli í Miðneshreppi, f. 22. febrúar 1854, d. 31. mars 1939.

Jóhann var með móður sinni og manni hennar á Flankastöðum á Reykjanesi 1890, 17 ára á Stafnesi þar 1901, á Bergi í Eyjum 1910, en átti þá heimili á Seyðisfirði.
Hann eignaðist barn með Dagmar 1938.
Þau Þuríður eignuðust fjögur börn í Eyjum, en eitt þeirra fæddist andvana. Þau bjuggu á Gjábakka 2 1915, í Skálholti við Landagötu 1920, á Brimnesi 1923.
Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu á Grettisgötu 52 1930.
Þuríður lést 1934 á Vífilsstöðum. Jóhann Maríus dvaldi að síðustu á Hrafnistu og lést 1974.

I. Barnsmóðir Jóhanns var Dagmar Jóhannesdóttir verkakona í Reykjavík, f. 3. mars 1909 á Ormsstöðum í Grímsnesi, Árn., d. 2. desember 1971 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Guðrún Jóhannsdóttir heimilishjálp, húsfreyja í Reykjavík, f. 25. júlí 1938 í Heiðarbæ í Þingvallasveit. Maður hennar Leifur Friðleifsson.

II. Kona Jóhanns Maríusar var Þuríður Auðunsdóttir frá Húsavík, húsfreyja, f. 28. sept. 1892 á Stokkseyri, d. 22. apríl 1934 á Vífilsstöðum.
Börn þeirra voru
1. Ólafía Petrea Jóhannsdóttir Thorlacius húsfreyja, f. 18. ágúst 1912, d. 9. september 2002. Maður hennar Haraldur Þorleifsson Thorlacius.
2. Guðmann Hákon Jóhannsson verkamaður, garðyrkjumaður, leigubílstjóri, síðast í Mosfellsbæ, f. 12. nóvember 1913, d. 18. september 1967. Fyrrum kona hans Þorbjörg Guðmundsdóttir. Kona hans Hólmfríður Ingibjörg Guðvarðardóttir.
3. Andvana stúlka, f. 2. janúar 1917.
4. Haraldur Óskar Jóhannsson sjómaður í Keflavík, f. 13. nóvember 1921, drukknaði 17. maí 1953. Kona hans Viktoría Sigurjónsdóttir.

III. Sambúðarkona Jóhanns var Ingibjörg Jóhanna Jakobsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. júní 1894, d. 19. janúar 1968, d. 19. janúar 1968. Foreldrar hennar Jakob Guðmundsson bóndi á Ytri-Hóli á Skagaströnd og Blálandi í Hallárdal, síðar verkamaður í Holti (Eyri) á Skagaströnd, f. 21. ágúst 1866 á Auðólfsdal, d. 18. júní 1932, og fyrri kona hans Þórdís Petrea Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 11. júní 1864, d. 13. janúar 1944.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.