Haraldur Óskar Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Haraldur Óskar Jóhannsson frá Skálholti við Landagötu, sjómaður fæddist 13. nóvember 1921 á Brimnesi og drukknaði 17. maí 1953.
Foreldrar hans voru Jóhann Maríus Einarsson sjómaður, trésmiður, f. 19. febrúar 1884 á Auðnum í Kálfatjarnarsókn á Reykjanesi, d. 11. mars 1974, og kona hans Þuríður Auðunsdóttir frá Húsavík, húsfreyja, f. 28. september 1892 á Stokkseyri, d. 22. apríl 1934 á Vífilsstöðum.

I. Barn Jóhanns og Dagmarar Jóhannesdóttur:
1. Guðrún Jóhannsdóttir heimilishjálp, húsfreyja í Reykjavík, f. 25. júlí 1938 í Heiðarbæ í Þingvallasveit. Maður hennar Leifur Friðleifsson.
Börn Þuríðar og Jóhanns:
2. Ólafía Petrea Jóhannsdóttir Thorlacius húsfreyja, f. 18. ágúst 1912, d. 9. september 2002. Maður hennar Haraldur Þorleifsson Thorlacius.
3. Guðmann Hákon Jóhannsson verkamaður, garðyrkjumaður, leigubílstjóri, síðast í Mosfellsbæ, f. 12. nóvember 1913, d. 18. september 1967. Fyrrum kona hans Þorbjörg Guðmundsdóttir. Kona hans Hólmfríður Ingibjörg Guðvarðardóttir.
4. Andvana stúlka, f. 2. janúar 1917.
5. Haraldur Óskar Jóhannsson sjómaður, f. 13. nóvember 1921, drukknaði 17. maí 1953. Kona hans Viktoría Sigurjónsdóttir.

Haraldur Óskar var með foreldrum sínum í æsku, á Brimnesi, í Skálholti og í Reykjavík.
Hann var sjómaður, að síðustu í Keflavík.
Þau Viktoría giftu sig, eignuðust fjögur börn, síðasta barnið fæddist eftir dauða Haraldar.
Haraldur Óskar drukknaði 1953 og Viktoría 1991.

I. Kona Haraldar Óskars var Viktoría Sigurjónsdóttir húsfreyja, verkakona í Keflavík, f. 24. október 1922 á Eyrarbakka, d. 20. janúar 1991 í Keflavík. Foreldrar hennar voru Sigurjón Jóhannesson verkamaður, f. 7. ágúst 1891 í Grindavík, d. 25. júní 1936, og kona hans Vigfúsína Sigríður Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 29. október 1881 á Stokkseyri, d. 20. nóvember 1957.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Haraldsdóttir (Jóhanna Thuridur Jones), f. 7. nóvember 1947. Maður hennar David Royston Jones.
2. Hrönn Haraldsdóttir (Hrönn Haraldsdóttir Civita), f. 28. febrúar 1950. Fyrrum maður hennar Josep F. Lincoln. Maður hennar Joe Civita.
3. Halldóra Ósk Haraldsdóttir (Carrol), f. 31. október 1952. Barnsfaðir hennar Björn Ómar Jakobsson. Maður hennar Michael Carrol.
4. Haraldur Óskar Haraldsson, f. 3. desember 1953.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.