Jóhann Ólafur Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Ólafur Guðmundsson, rekur brugghúsið Brothers Brewery í Eyjum, fæddist 1. júlí 1977.
Foreldrar hans Guðmundur Jóhannsson, rafvirki, framkvæmdastjóri, f. 19. september 1957, og kona hans Margrét Kjartansdóttir, húsfreyja, leikskólakennari, f. 7. janúar 1959.

Börn Margrétar og Guðmundar:
1. Jóhann Ólafur Guðmundsson, f. 1. júlí 1977. Hann rekur brugghúsið Brothers Brewery í Eyjum. Kona hans Valgerður Þorsteinsdóttir.
2. Davíð Örn Guðmundsson bílasmiður í Kópavogi, f. 10. apríl 1983. Kona hans Anna Brynja Valmundsdóttir.
3. Rakel Ósk Guðmundsdóttir fötlunarfræðingur, kennari við Grunnskóla Vestmannaeyja, f. 23. febrúar 1989. Maður hennar Hannes Kristinn Eiríksson.

Þau Valgerður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Hvítingaveg 6.

I. Kona Jóhanns Ólafs er Valgerður Þorsteinsdóttir, húsfreyja, leikskólakennari, f. 8. nóvember 1976.
Börn þeirra:
1. Maríanna Ósk Jóhannsdóttir, f. 2. júní 1999.
2. Guðmundur Jóhannsson, f. 29. apríl 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.