Ingveldur Þórarinsdóttir (Skel)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Þórarinsdóttir í Skel, húsfreyja fæddist 3. janúar 1884 í Nýjabæ á Eyrarbakka og lést 15. september 1936.
Foreldrar hennar voru Þórarinn Bjarnason bóndi og sjómaður, f. 16. janúar 1849, d. 5. janúar 1932, og Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1858, d. 15. apríl 1931.

Ingveldur var með foreldrum sínum 1890 og 1901.
Hún eignaðist barn með Guðmundi 1908.
Hún var lausakona í Reykjavík 1910, giftist Þorgeiri 1913 og fluttist sama ár með honum til Eyja.
Þau bjuggu á Bólstað við Heimagötu 1914 til 1918, en voru komin í Skel 1920 og bjuggu þar 1934, en á Hamri við Skólaveg 33 1936 við andlát Ingveldar.
Þau eignuðust þrjú börn.
Ingveldur lést 1936 og Þorgeir 1942.

I. Barnsfaðir Ingveldar var Guðmundur Pétursson nuddlæknir á Eskifirði, f. 24. maí 1873 í Reykjavík, d. 18. febrúar 1944.
Barn þeirra:
1. Hjálmtýr Róbert Guðmundsson sjómaður í Reykjavík, f. 11. nóvember 1908 í Bjarnaborg í Reykjavík, tók út af togaranum Belaum við Englandsstrendur 1. mars 1932.

II. Maður Ingveldar, (1913) var Þorgeir Eiríksson formaður, f. 5. ágúst 1886 í Berjanesi u. Eyjafjöllum, drukknaði 1. mars 1942.
Börn þeirra voru:
2. Hafsteinn Frímann Þorgeirsson, f. 18. maí 1914 á Bólstað, d. 4. júlí 1931.
3. Gunnarína Margrét Þorgeirsdóttir húsfreyja á Hamri, f. 18. janúar 1921 í Skel, d. 19. júní 1990.
4. Guðfinnur Þorgeirsson sjómaður, skipstjóri, f. 20. nóvember 1926 í Skel, d. 22. mars 2012.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.