Ingi Þór Þorvaldsson
Ingi Þór Þorvaldsson tölvutæknir fæddist 16. ágúst 1977.
Foreldrar hans Þorvaldur Pálmi Guðmundsson sjómaður, vinnuvélastjóri, f. 17. júní 1951, og Anna Ingibjörg Lúðvíksdóttir húsfreyja, sjúkraliði f. 5. júlí 1953.
Barn Þorvaldar og Margrétar:
1. Jón Halldór Pálmason skipstjóri í Hnífsdal, f. 24. mars 1973. Kona hans María Berglind Kristófersdóttir.
Börn Önnu og Þorvaldar:
2. Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson þjóðfræðingur, leikstjóri, forstöðumaður frístundaheimilis í Garðabæ, f. 23. maí 1976. Sambúðarkona hans Steinunn Sif Sverrisdóttir.
3. Ingi Þór Þorvaldsson tölvutæknir, f. 16. ágúst 1977, ókvæntur.
4. Jónína Kristín Þorvaldsdóttir forstöðumaður frístundaheimilis í Reykjavík, f. 15. maí 1984. Maður hennar Ásgeir Eiríksson.
Ingi Þór er ókvæntur og barnlaus. Hann býr í Kópavogi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Ingi Þór.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.