Hrefna Sigurðardóttir (Heiðarvegi 43)
Hrefna Sigurðardóttir frá Siglufirði, húsfreyja fæddist þar 20. júlí 1916 og lést 20. febrúar 2000 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson verkamaður, f. 10. júlí 1869, d. 12. ágúst 1949, og Ólöf Septína Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1876, d. 16. mars 1941.
Þau Einar giftu sig 1943, eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra nýfætt. Þau bjuggu á Vestmannabraut 74, síðar á Heiðarvegi 43.
Einar lést 1998 og Hrefna 2000.
I. Maður Hrefnu, (18. desember 1943), var Einar Sigurjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 7. janúar 1920 á Höfðabrekku, d. 14. október 1998.
Börn þeirra:
1. Óskar Sigurjón Einarsson verkstjóri, f. 7. febrúar 1945 á Vestmannabraut 74. Fyrri kona hans Guðfinna Lilja Tómasdóttir. Síðari kona hans Katla Magnúsdóttir.
2. Drengur, f. 13. maí 1955 á Heiðarvegi 43, d. 15. maí 1955.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 26. febrúar 2000.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.