Hrafn Franklín Friðbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hrafn Franklín Friðbjörnsson.

Hrafn Franklín Friðbjörnsson frá Bjarma við Miðstræti 4, kennari, sálfræðingur fæddist 8. febrúar 1965.
Foreldrar hans voru Friðbjörn Kristjánsson matreiðslumeistari, bryti, f. 27. september 1939, d. 9. febrúar 2022, og sambúðarkona hans Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum við Landagötu 18.

Börn Kristínar Óskar og Friðbjörns:
1. Anna Friðbjörnsdóttir, f. 2. desember 1957, d. 12. maí 1990 í Eyjum. Fyrrum sambúðarmaður hennar Magnús Gunnarsson.
2. Kristjana Friðbjörnsdóttir, f. 20. ágúst 1959 á Boðaslóð 27 í Eyjum. Maður hennar Páll Garðar Andrésson.
3. Óskar Friðbjörnsson, f. 23. janúar 1962 í Reykjavík. Kona hans Sigurbára Sigurðardóttir.
4. Hrafn Franklín Friðbjörnsson, f. 8. febrúar 1965 í Eyjum, d. 28. júní 2009. Fyrrum kona hans Ágústa Þóra Johnson.

Hrafn var með móður sinni í Bjarma við Miðstræti 4, síðar með foreldrum sínum í Reykjavík.
Hann varð stúdent í Menntaskólanum í Kópavogi 1985, lauk meistaraprófi í sálfræði í Fort Lauderdale í Florida.
Hrafn vann við kennslu og skipulagningu líkamsræktar og síðar stundaði hann sálfræðistörf á Ólafsfirði að loknu sálfræðinámi.
Þau Ágústa Þóra giftu sig 1991, eignuðust tvö börn, en skildu.

I. Kona Hrafns, (29. ágúst 1991, skildu 1999), er Ágústa Þóra Johnson, f. 2. deseber 1963. Foreldrar hennar Rafn Friðþjófsson Johnson, f. 4. janúar 1938, og kona hans Hildigunnur Dungal Johnson, f. 12. febrúar 1942.
Börn þeirra:
1. Anna Ýr Johnson Hrafnsdóttir, f. 19. október 1991.
2. Rafn Franklín Johnson Hrafnsson, f. 17. september 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.