Hildur Ágústsdóttir (Klauf)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hildur Ágústsdóttir.

Hildur Ágústsdóttir frá Álfhólum í V.-Landeyjum, húsfreyja fæddist 13. október 1935 og lést 28. júní 2020.
Foreldrar hennar voru Ágúst Jónsson bóndi, f. 11. desember 1910, d. 4. desember 1999, og kona hans Sigríður Lóa Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 8. desember 1913, d. 29. mars 1985.

Hildur var með foreldrum sínum í æsku, en fór unglingur til Eyja.
Hún var 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1953.
Hún vann hjá Kaupfélagi Rangæinga og einnig var hún verslunarstjóri í Eyjum á yngri árum. Hún var virk í kvenfélagi Bergþóru og gegndi formennsku þar í 24 ár. Hún var húsvörður í Njálsbúð í Landeyjum samfara búskap í fjölda ára.
Þau Rúnar giftu sig, eignuðust níu börn. Þau bjuggu í fyrstu hjá foreldrum hennar í Sigluvík í V.-Landeyjum, hófu búskap í Klauf þar 1958 og fluttu þangað 1961, bjuggu þar til 2005, er þau fluttu á Hvolsvöll. Þau bjuggu á Gilsbakka, en fluttu síðan á Kirkjuhvol.
Rúnar lést 2017 og Hildur 2020.

Maður Hildar, (26. maí 1957), var Rúnar Guðjónsson frá Sólheimatungu við Brekastíg 14, bóndi, verkamaður, f. þar 26. ágúst 1933, d. 20. maí 2017.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ágúst Rúnarsson, f. 8. maí 1955. Kona hans Lára Ólafsdóttir.
2. Guðjón Rúnarsson, f. 6. mars 1957. Kona hans Sandra D. Georgsdóttir.
3. Þórdís Jóna Rúnarsdóttir, f. 18. júlí 1958. Maður hennar Skúli Guðmundsson.
4. Magnús Rúnarsson, f. 27. apríl 1961. Kona hans Elísabet Ó. Helgadóttir.
5. Sigríður Lóa Rúnarsdóttir, f. 22. febrúar 1964. Maður hennar Steindór V. Reyndal.
6. Ágúst Rúnarsson, f. 18. apríl 1966. Fyrrum sambúðarkona hans Ragnheiður Jónsdóttir. Kona hans Rósa Emilsdóttir.
7. Rúnar Smári Rúnarsson, f. 18. apríl 1970.
8. Sævar Rúnarsson, f. 22. ágúst 1977. Kona hans M. Sóley Sigmarsdóttir.
9. Sigurbára Rúnarsdóttir, f. 6. október 1980. Maður hennar Einar Hjálmarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.