Helga Sigurbjarnardóttir (Hálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Sigurbjarnardóttir frá Kjalardal í Skilmannahreppi, Borg., húsfreyja fæddist 24. nóvember 1880 og lést 12. apríl 1970.
Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Bjarnason, þá fyrirvinna Vigdísar, f. 1844 í Melasveit í Borgarfirði, d. 26. september 1914 í Hjarðarholti í Kjós, og barnsmóðir hans Vigdís Jónsdóttir, áður gift Bergþóri Þórðarsyni bónda í Kjalardal, Borg.; hún f. 3. september 1839, d. 30. nóvember 1910.

Helga var tökubarn hjá föður sínum á Neðri-Hálsi í Reynivallasókn í Kjósarsýslu 1890, með móður sinni í Reykjavík 1901.
Hún eignaðist barn með Jóni 1904,
Þau Jón Benediktsson giftu sig 1906, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Reykjavík, fluttu til Eyja 1908.
Þau bjuggu í Dal 1909, í Bræðraborg við Njarðarstíg 3 1910, á Kornhól við Strandveg 1 1920, byggðu húsið Háls við Brekastíg 28, bjuggu þar 1922 og 1927, á Sveinsstöðum 1930.
Jón lést 1932.
Helga bjó ekkja á Sveinsstöðum 1934 og 1940 með sonum sínum og enn 1945 og 1949, flutti til Reykjavíkur, átti síðast heimili á Lækjarhvoli þar.
Hún lést 1970.

I. Barnsfaðir Helgu var Jón Gíslason verkamaður á Grettisgötu 10 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Þorbjörg Jónsdóttir tökubarn í Hafnarfirði 1910, vinnukona í London 1920, síðast í Reykjavík, f. 25. september 1904 á Grettisgötu 18 í Reykjavík, d. 6. mars 1988.

II. Maður Helgu, (1906), var Jón Benediktsson frá Finnbogastöðum í Trékyllisvík í Strandasýslu, verkamaður, bræðslumaður, f. 17. ágúst 1859, d. 22. september 1932 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Hansína Vigdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. október 1906 í Reykjavík, d. 10. júní 2006.
2. Benedikt Hákon Jón Jónsson sjómaður, f. 1. september 1909 Dal við Kirkjuveg, d. 19. ágúst 1984.
3. Karítas Sæmunda Kristín Jónsdóttir, f. 3. febrúar 1917, d. 20. ágúst 1982.
4. Benedikt Óskar Jónsson, f. 9. júlí 1924, d. 27. september 1992.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.