Heiða Björk Sturludóttir
Heiða Björk Sturludóttir húsfreyja, framhaldsskólakennari, leiðsögumaður, jógakennari, kennir indversk heilsuvísindi, fæddist 24. maí 1967.
Foreldrar hennar Guðbjörg Pálsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, sjúkraliði, f. 20. júlí 1937, d. 11. ágúst 2024, og Sturla Friðrik Þorgeirsson húsgagnasmíðameistari, f. 25. nóvember 1933, d. 23. mars 2016.
Börn Guðbjargar og Sturlu:
1. Páll Sturluson sölustjóri, sviðsstjóri, f. 2. mars 1956. Kona hans Anna Rós Jóhannsdóttir.
2. Jóhann Pétur Sturluson M.Sc-viðskiptafræðingur, fjármálastjóri, rak bókhaldsstofu, f. 6. maí 1958. Barnsmóðir hans Stella Marie Mahaney.
3. Lára Kristín Sturludóttir stjórnsýslufræðingur, hefur fengist við ritstörf, f. 11. nóvember 1962. Maður hennar Trausti Pálsson.
4. Heiða Björk Sturludóttir húsfreyja, framhaldsskólakennari, leiðsögumaður, jógakennari, kennir indversk heilsuvísindi, f. 24. maí 1967. Barnsfaðir hennar Guðmundur Erlingsson. Maður hennar Þröstur Sverrisson.
Heiða Björk eignaðist barn með Guðmundi 1996.
Þau Þröstur giftu sig, hafa ekki eignast barn saman. Þau búa í Grímsnesi.
I. Barnsfaðir Heiðu Bjarkar er Guðmundur Erlingsson, f. 14. nóvember 1968.
Barn þeirra:
1. Kolbeinn Sturla Guðmunds Heiðuson, f. 4. nóvember 1996.
II. Maður Heiðu Bjarkar er Þröstur Sverrisson úr Hfirði, leiðsögumaður, f. 8. febrúar 1968. Foreldrar hans Sverrir Kristján Bjarnason, f. 31. júlí 1940, og Sóley Björk Ásgrímsdóttir, f. 29. maí 1940.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heiða Björk.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.