Halldóra Björk Jónsdóttir
Halldóra Björk Jónsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 16. desember 1956.
Foreldrar hennar Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð, sjómaður, verkstjóri, fræðibókahöfundur, f. 17. júní 1924, d. 4. september 2012, og kona hans Guðríður Bryndís Jónsdóttir frá Vík í Mýrdal, húsfreyja, bókhaldari, umsjónarmaður, f. 27. desember 1936.
Börn Bryndísar og Jóns:
1. Halldóra Björk Jónsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 16. desember 1956. Barnsfaðir hennar Sigurður Hannesson. Fyrrum maður hennar Ingimar Haraldsson.
2. Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, leiðsögumaður, f. 14. janúar 1958. Maður hennar Bogi Agnarsson.
3. Birna Ólafía Jónsdóttir húsfreyja, kerfisfræðingur, f. 15. mars 1960. Maður hennar Ásmundur Jón Þórarinsson.
4. Björn Jón Jónsson rafvirki, leigubifreiðastjóri, f. 13. október 1962. Barnsmóðir hans Guðný Elfa Kristjánsdóttir.
Halldóra Björk eignaðist barn með Sigurði 1983.
Þau Ingimar giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Halldóra Björk býr í Garðabæ.
I. Barnsfaðir Halldóru er Sigurður Hannesson úr Rvk, sölumaður, f. 27. júní 1951.
Barn þeirra:
1. Hannes Þorsteinn Sigurðsson, f. 10. apríl 1983.
II. Fyrrum maður Halldóru Bjarkar er Ingimar Haraldsson úr Hfirði, bankamaður, f. 21. október 1956. Foreldrar hans Klara Guðmundsdóttir, f. 12. ágúst 1925, d. 10. apríl 2022, og Haraldur Sigurjónsson, f. 24. júní 1917, d. 14. maí 1995.
Barn þeirra:
2. Kristín Björk Ingimarsdóttir, f. 20. nóvember 1997.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Halldóra Björk.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.