Bryndís Jónsdóttir (Vík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Bryndís Jónsdóttir frá Vík í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 27. desember 1936.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, smiður, verkamaður, málmsteypumaður, f. 18. ágúst 1889 í Suður-Hvammi í Mýrdal, d. 6. maí 1957 í Reykjavík, og kona hans Guðný Þorgerður Þorgilsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1900 á Svínafelli í Öræfum, d. 31. ágúst 1994.

Bryndís var með foreldrum sínum í æsku, í Vík til 1938 og í Reykjavík.
Hún vann um skeið ýmis skrifstofustörf, við bókhald og umsjón.
Þau Jón giftu sig 1956, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Hlaðbæ við Austurveg 28 1957, komin á Boðaslóð 12 1958, síðar í Gaukshólum 2 í Reykjavík, en síðast við Ægissíðu 92 þar.
Jón lést 2012. Bryndís býr á Ægissíðu 92.

I. Maður Bryndísar, (3. júní 1956), var Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð, verkamaður, sjómaður, bifreiðastjóri, verksmiðjurekandi, verkstjóri, fræðibókarithöfundur, f. 17. júní 1924, d. 4. september 2012.
Börn þeirra:
1. Halldóra Björk Jónsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 16. desember 1956. Barnsfaðir hennar Sigurður Hannesson. Fyrrum maður hennar Ingimar Haraldsson.
2. Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, leiðsögumaður, f. 14. janúar 1958. Maður hennar Bogi Agnarsson.
3. Birna Ólafía Jónsdóttir húsfreyja, forritari, f. 15. mars 1960. Maður hennar Ásmundur Jón Þórarinsson.
4. Björn Jón Jónsson rafvirki, leigubifreiðastjóri, f. 13. október 1962. Barnsmóðir hans Guðný Elfa Kristjánsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bryndís.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.