Halldóra Björk Halldórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Björk Halldórsdóttir, húsfreyja, leikskólakennari fæddist 19. nóvember 1986 í Eyjum.
Foreldrar hennar Halldór Hjörleifsson, iðnfræðingur, f. 9. nóvember 1960, og kona hans Erna Þórsdóttir, húsfreyja, gistiheimilisrekandi, f. 28. júlí 1963.

Börn Ernu og Halldórs:
1. Hafþór Halldórsson rafeindavirki, f. 20. ágúst 1983. Fyrrum sambúðarkona Eva María Jónsdóttir. Sambúðarkona Linda Rós Sigurðardóttir.
2. Halldóra Björk Halldórsdóttir leikskólakennari, f. 19. nóvember 1986. Maður hennar Björn Sigþór Skúlason.
3. Brynja Rut Halldórsdóttir húsfreyja, sjávarútvegs- og viðskiptafræðingur, f. 22. febrúar 1993. Fyrrum sambúðarmaður Tómas Ísleifsson. Maður hennar Ríkarð Magnússon.
4. Ingi Þór Halldórsson húsasmiður, f. 10. júlí 1995. Sambúðarkona hans Margrét Ástrós Gunnarsdóttir.

Þau Björn Sigþór giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Bröttugötu 9.

I. Maður Halldóru er Björn Sigþór Skúlason, byggingatæknifræðingur, f. 17. mars 1985.
Börn þeirra:
1. Halldór Skúli Björnsson, f. 19. október 2009 í Rvk.
2. Erna Karen Björnsdóttir, f. 4. október 2012 í Rvk.
3. Anna Guðrún Björnsdóttir, f. 20. apríl 2021.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.