Guðrún Magnúsdóttir (Njarðarstíg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Magnúsdóttir frá Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal í Borgarfirði, húsfreyja, fiskvinnslukona fæddist 1. október 1897 og lést 18. júlí 1977.
Foreldrar hennar voru Magnús Gunnlaugsson bóndi, f. 18. apríl 1859, d. 23. mars 1932, og kona hans Elísabet Gísladóttir húsfreyja, f. 1. september 1869, d. 24. ágúst 1955.

Þau Þórður giftu sig 1928 í Eyjum, eignuðust þrjú börn, en misstu eitt þeirra tæpra tveggja ára. Þau bjuggu við Njarðarstíg 4 í Eyjum, síðan á Akranesi.

I. Maður Guðrúnar var Þórður Frímannsson frá Kvíslarhóli á Tjörnesi, sjómaður, trésmiður, f. 24. febrúar 1896, d. 18. maí 1931 á Akranesi.
Börn þeirra:
1. Elías Magnús Þórðarson, f. 24. nóvember 1928, d. 6. janúar 1993.
2. Þórður Þorkell Þórðarson, f. 3. maí 1930, d. 9. janúar 1932.
3. Gunnþóra Þórðardóttir, f. 19. júlí 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.