Elías Magnús Þórðarson
Elías Magnús Þórðarson verslunarmaður, sjómaður fæddist 24. nóvember 1928 í Eyjum og lést 6. janúar 1993 .
Foreldrar hans voru Guðrún Magnúsdóttir frá Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal, húsfreyja, fiskverkakona, f. 1. október 1897, d. 18. júlí 1977, og maður hennar Þórður Frímannsson frá Kvíslarhóli á Tjörnesi, sjómaður, trésmiður, f. 24. febrúar 1896, d. 18. maí 1931.
Elías eignaðist barn með Önnu 1949.
Þau Hrefna giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Akranesi.
I. Barnsmóðir Elíasar Magnúsar var Anna Dagbjört Þorleifsdóttir, f. 22. september 1930, d. 3. september 2016.
Barn þeirra:
1. Elías Rúnar Elíasson, f. 9. febrúar1949.
II. Kona Elíasar Magnúsar, (14. apríl 1952), var Hrefna Daníelsdóttir húsfreyja, f. 16. apríl 1933, d. 29. október 2012. Foreldrar hennar voru Sigrún Sigurðardóttir, f. 2. október 1908, d. 21. maí 1942, og Guðlaugur Daníel Vigfússon, f. 16. nóvember 1903, d. 11. maí 1964.
Börn þeirra:
1. Þórður Elíasson, f. 31. október 1951.
2. Sigrún Elíasdóttir, f. 7. júní 1953, d. 2. apríl 2023.
3. Frímann Smári Elíasson, f. 18. febrúar 1956, d. 23. ágúst 2025.
4. Hrafn Elvar Elíasson, f. 27. desember 1958.
5. Daníel Rúnar Elíasson, f. 13. júlí 1961.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.