Guðrún Birna Leifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Birna Leifsdóttir, húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða fæddist 9. maí 1951 á Austurvegi 16.
Foreldrar hennar voru Leifur Ársælsson frá Fögrubrekku, útgerðarmaður, f. 10. júlí 1931, d. 16. september 2017, og kona hans Guðný Bjarnadóttir húsfreyja, f. 25. apríl 1931, d. 27. ágúst 2017.

Börn Guðnýjar og Leifs:
1. Guðrún Birna Leifsdóttir húsfreyja og starfsmaður í Hraunbúðum, f. 9. maí 1951. Maður hennar er Bjarni Guðjón Samúelsson húsasmiður, f. 8. apríl 1950.
2. Leifur Ársæll Leifsson húsasmiður, f. 8. febrúar 1955, d. 7. ágúst 2013. Kona hans var Jóna Björgvinsdóttir frá Úthlíð, húsfreyja og skrifstofustjóri hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, f. 7. nóvember 1957.
3. Elín Laufey Leifsdóttir húsfreyja og tómstundaleiðbeinandi í Hraunbúðum, f. 12. apríl 1958. Maður hennar er Jóhannes Óskar Grettisson húsasmiður, f. 27. mars 1958.

Þau Bjarni giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Höfðaveg 47.

I. Maður Guðrúnar Birnu er Bjarni Guðjón Samúelsson, húsasmíðameistari, f. 8. apríl 1950.
Börn þeirra:
1. Guðný Bjarnadóttir, f. 8. ágúst 1971.
2. Samúel Sveinn Bjarnason, f. 14. júní 1975.
3. Margrét Bjarnadóttir, f. 4. maí 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.