Guðný K. Valberg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðný Jóhanna Valberg

Guðný Jóhanna Kristmundsdóttir Valberg húsfreyja í Reykjavík fæddist 6. september 1926 á Vattarnesi við Reyðarfjörð og lést á 28. júlí 2008 á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi.
Foreldrar hennar voru Kristmundur Jóhannes Jóhannsson frá Sjónarhóli á Stokkseyri, sjómaður, verkamaður, f. 19. október 1899 í Skíðbakkahjáleigu í A-Landeyjum, síðast í Sæviðarsundi 21 í Reykjavík, d. 26. febrúar 1971, og kona hans Elín Aðalbjörg Þorsteinsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. 9. september 1902, síðast í Sæviðarsundi 21, d. 16. ágúst 1974.

Börn Aðalbjargar og Kristmundar:
1. Guðný Jóhanna Kristmundsdóttir Valberg húsfreyja í Reykjavík, f. 6. september 1926, d. 28. júlí 2008.
2. Gunnþóra Sigurbjörg Kristmundsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1922, d. 10. júní 2016.
3. Þorkell Kristmundsson, f. 6. nóvember 1928, d. 28. mars 1935.

Guðný var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim frá Vattarnesi til Eyja 1930 og bjó með þeim á Vestari-Vesturhúsum 1930, á Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3 1934 og á Fífilgötu 2 1940 og 1945.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1943, lærði í Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði 1944-1945.
Guðný flutti til Reykjavíkur 1946, vann við umönnun á Hrafnistu með heimilinu.
Þau Samúel giftu sig 1948, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Kambsveg, en síðast á Gvendargeisla 19 í Reykjavík.
Samúel lést 2005 og Guðný 2008.

I. Maður Guðnýjar Jóhönnu, (3. júlí 1948), var Samúel Júlíus Valberg húsgagnabólstrari, f. 19. júlí 1920, d. 12. febrúar 2005. Foreldrar hans voru Lárus Þ. A. Valberg frá Reykjavöllum í Skagafirði, f. 30. mars 1893, d. 1. mars 1932, og kona hans Ingibjörg Eiríksdóttir Valberg frá Minni-Mástungu í Gnúpverjahreppi, Árn., húsfreyja, f. 7. nóvember 1884, d. 22. desember 1962.
Börn þeirra;
1. Aðalbjörg Kristín Samúelsdóttir, f. 1. september 1948. Sambúðarmaður hennar Matthías Sveinsson.
2. Eiríkur Þórarinn Samúelsson, f. 20. júlí 1950, d. 26. september 1982.
3. Lárus Samúelsson, f. 26. desember 1951. Kona hans Guðný Rut Jónsdóttir.
4. Kristmundur Samúelsson, f. 27. desember 1954. Fyrrum kona hans Guðrún Sigurjónsdóttir.
5. Ingibjörg Samúelsdóttir, f. 9. júní 1958. Maður hennar Erlingur Einarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.