Fjóla Björk Jónsdóttir
Fjóla Björk Jónsdóttir húsfreyja, iðnrekstrarfræðingur, vinnur hjá Steina og Olla, fæddist 29. janúar 1971.
Foreldrar hennar Jón Sigurðsson, f. 6. mars 1948, d. 20. desember 1987, og Auður Adolfsdóttir, f. 4. júlí 1952.
Þau Ingi giftu sig, eiga þrjú börn. Þau búa í Litlagerði 3.
I. Maður Fjólu Bjarkar er Ingi Sigurðsson knattspyrnumaður, fyrrum bæjarstjóri, nú útibústjóri Íslandsbanka í Eyjum, f. 18. desember 1968. Foreldrar hans Erna Sigurjónsdóttir, f. 6. ágúst 1938, og Sigurður Magnússon sjómaður, stýrimaður, f. 15. febrúar 1938, d. 24. maí 2011.
Börn þeirra:
1. Jón Ingason, f. 21. september 1995.
2. Inga Lind Ingadóttir, f. 7. október 2000.
3. Inga Dan Ingadóttir, f. 25. júlí 2005.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Ingi.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.