Fanney Þórhallsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fanney Þórhallsdóttir frá Reynistað, húsfreyja, verkakona fæddist 30. maí 1957.
Foreldrar hennar Þórhallur Þórarinsson sjómaður, f. 2. júní 1935, d. 27. september 2023, og Kristín Sigurlásdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 26. apríl 1935, d. 27. október 2020.

Barn Kristínar og Gunnars Helga:
1. Þuríður Helgadóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 25. júlí 1953 á Reynistað, d. 20. nóvember 2007. Fyrrum sambúðarmaður hennar var Jóhannes Á. Johnsen. Sambúðarmaður Valdimar Þór Gíslason Magnússonar.
Börn Kristínar og Þórhalls:
2. Fanney Þórhallsdóttir, f. 30. maí 1957 á Reynistað. Sambýlismaður hennar Axel Jónsson.
3. Þórarinn Þórhallsson, f. 20. mars 1960. Kona hans Hafdís Sigurðardóttir.

Þau Axel hófu sambúð, eignuðust þrjú börn saman. Þau búa í Borgarhöfn 4/Krókur í Suðursveit í A.-Skaft.

I. Sambúðarmaður Fanneyjar er Axel Jónsson, skipstjóri, útgerðarmaður frá Höfn í Hornafirði, f. 30. október 1959. Foreldrar hans Jón Sveinsson, f. 31. október 1933, d. 28. júní 2009, og Sigríður Helga Axelsdóttir, f. 8. júlí 1934, d. 18. júlí 2022.
Börn þeirra:
1. Þórhallur Axelsson, f. 12. maí 1980.
2. Sigríður Helga Axelsdóttir, f. 31. ágúst 1985.
3. Jón Freyr Axelsson, f. 19. apríl 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.