Fídes Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fídes Guðmundsdóttir húsfreyja á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, síðar í Reykjavík, fæddist 13. desember 1853 og lést 14. janúar 1934.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1. janúar 1825, d. 22. maí 1866, og kona hans Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja, f. 24. september 1825, d. 30. maí 1874.

Fídes var hjá Jóni Salómonssyni og Jórunni Austmann í Jómsborg við fermingu 1868. Hún var vinnukona í Jómsborg 1870, vinnukona í Stakkagerði 1873, í Þorlaugargerði 1874.
Þau Páll bjuggu á Vilborgarstöðum 1875.
Þau fluttust til Fljótshlíðar 1876 með börnin.
Við skráningu 1890 var hún húsfreyja á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka með Pál og barnið Nikuklás 3 ára hjá sér, og 1901 var hún þar með sömu áhöfn. Þau fluttu til Reykjavíkur með Nikulás 1902.
Við skráningu 1910 voru þau búandi í skjóli Nikulásar sonar síns á Laugavegi 69 í Reykjavík.
Fídes var húsfreyja í Rvk 1920, búsett á Laugavegi 53a, - búsett á Grettisgötu 36 við andlát 1934.

Maður hennar, (1. maí 1874), var Páll Jónsson trésmiður, f. 4. desember 1844, d. 7. október 1922.
Þau eignuðust 6 börn, 4 dóu fyrir mt. 1910.
Börn þeirra hér:
1. Sigríður Pálsdóttir húsfreyja í Hávarðarkoti í Djúpárhreppi í Rang., f. 23. maí 1873 í Stakkagerði, d. 28. október 1954. Maður hennar var Þórður Kristinn Ólafsson bóndi, f. 19. október 1870, d. 5. september 1941.
2. Jóhann Guðmundur Pálsson sjómaður á Heylæk í Fljótshlíð, f. 2. febrúar 1875 á Vilborgarstöðum, d. 1898.
3. Jórunn Pálsdóttir, f. 4. júlí 1879 á Sámsstöðum, d. 6. júlí 1879.
4. Nikulás Pálsson sjómaður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1887 á Gamla-Hrauni, d. 2. mars 1972.
5. Ágúst Pálsson, f. 21. ágúst 1892 á Gamla-Hrauni, d. tveggja ára.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.