Eydís Halldórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eydís Halldórsdóttir, sérfræðingur í innri endurskoðun hjá Arionbanka, fæddist 22. maí 1990.
Foreldrar hennar Halldór Bjarnason bílstjóri, vélvirki, f. 10. desember 1953 og Jensína Kristín Jensdóttir húsfreyja, vinnur í þvottahúsi Hraunbúða, f. 4. ágúst 1955.

Börn Jensínu og Halldórs:
1. Guðný Halldórsdóttir, f. 7. apríl 1975 í Eyjum.
2. Bjarni Halldórsson, f. 13. maí 1978 í Eyjum.
3. Eydís Halldórsdóttir, f. 22. maí 1990 í Eyjum.
4. Bjarki Halldórsson, f. 22. maí 1990 í Eyjum.

Þau Egill Valur giftu sig, hafa eignast eitt barn. Þau búa í Kópavogi.

I. Maður Eydísar er Egill Valur Hafsteinsson rafvirki, f. 16. október 1989. Foreldrar hans Hafsteinn Ingólfsson, f. 9. október 1956, og Ingibjörg Einarsdóttir, f. 24. júlí 1957.
Barn þeirra:
1. Hafdís Kristín Egilsdóttir, f. 20. september 2020.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.