Erla Guðrún Emilsdóttir (Miðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erla Guðrún Emilsdóttir frá Miðey, húsfreyja, hárgreiðslukona, myndlistarmaður í Kópavogi fæddist 6. febrúar 1970.
Foreldrar hennar eru Emil Sigurðsson bifvélavirki frá Búlandi, f. 3. desember 1927, og kona hans Elín Teitsdóttir húsfreyja, f. 30. desember 1932.

Barn Elínar og Emils:
1. Erla Guðrún Emilsdóttir.
Barn Elínar og fyrsta manns hennarRandolph Cantley Steele:
2. Anna Elín Steele húsfreyja, yogakennari í Reykjavík, f. 1. ágúst 1954.
Barn Erlu og annars manns hennar Einars Elíassonar kaupmanns í Reykjavík:
3. Sigrún Einarsdóttir húsfreyja, grafískur hönnuður í Kópavogi, f. 2. maí 1960.

Erla var með foreldrum sínum í Miðey til Goss og fluttist með þeim til Reykjavíkur, nam myndlist og stundar hana.
Hún eignaðist Agnar Smára 1993.
Þau Jón Sigurður eiga saman eitt barn.

I. Barnsfaðir Erlu Guðrúnar er Jón Halldórsson, f. 9. mars 1970.
Barn þeirra:
1. Agnar Smári Jónsson nemi í grafískri miðlun við Tækniskóla Íslands, handknattleiksmaður, f. 11. október 1993.

II. Maður Erlu er Jón Sigurður Helgason viðskiptafræðingur, löggiltur endurskoðandi, framkvæmdastjóri KPMG, f. 5. febrúar 1969. Foreldrar hans eru Helgi Vilhelm Jónsson hæstaréttarlögmaður, löggiltur endurskoðandi, einn af stofnendum KPMG, f. 30. maí 1936, og kona hans Ingibjörg Jóhannsdóttir húsfreyja, danskennari, f. 23. desember 1940.
Börn þeirra:
2. Tinna Rakel Jónsdóttir nemi, f. 3. desember 2004.
Sonur Erlu Guðrúnar og uppeldissonur Jóns Sigurðar er
3. Agnar Smári Jónsson nemi í grafískri miðlun við Tækniskóla Íslands, handknattleiksmaður, f. 11. október 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.