Elenóra Ingvarsdóttir (Sólvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elenóra Ingvarsdóttir.

Elenóra Ingvarsdóttir frá Junkaragerði í Höfnum fæddist þar 31. desember 1886 og lést 25. apríl 1977.
Foreldrar hennar voru Ingvar Ingvarsson frá Eystri-Hóli í Landeyjum, óðalsbóndi, sjómaður, f. 23. nóvember 1857, d. 25. júní 1917, og kona hans Kristín Stefánsdóttir frá Kalmanstjörn í Höfnum, Gull., húsfreyja, f. 2. júlí 1853, d. 1. mars 1938.

Börn Kristínar og Ingvars:
1. Sveinn Ingvarsson, f. 20. janúar 1877 á Kalmanstjörn í Höfnum, síðar í Reykjavík, d. 8. júlí 1948.
2. Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. júlí 1881 á Kalmanstjörn, d. 22. ágúst 1952.
3. Ráðhildur Ingvarsdóttir, f. 9. febrúar 1883, d. 22. febrúar 1883.
4. Stefán Ingvarsson útgerðarmaður á Kalmanstjörn í Eyjum, f. 14. janúar 1886, d. 18. apríl 1961.
5. Ráðhildur Ingvarsdóttir húsfreyja á Hrappsstöðum í Svarfaðardal, f. 24. mars 1885 í Junkaragerði, d. 30. júní 1944.
6. Elenóra Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 31. desember 1886 í Junkaragerði, d. 25. apríl 1977.
7. Kristinn Guðmundur Ingvarsson skipstjóri í Bræðraborg, f. 30. nóvember 1890, d. 20. nóvember 1918.

Elenóra var með foreldrum sínum á Kalmanstjörn 1901, bjó hjá foreldrum sínumm við Lindargötu 32 í Reykjavík 1910, en faðir hennar var sjómaður, staddur í Suðurkoti í Kálfatjarnarsókn.
Hún eignaðist barn með Árna 1910 og missti það 1912.
Hún eignaðist barn með Jóni á Staðarfelli 1916, en hann drukknaði 1916, áður en barnið fæddist.
Hún eignaðist barn með Júlíusi 1928.
Elenóra var með móður sinni á Sólvangi við Kirkjuveg 29 1920 og þar var Ráðhildur barn hennar og bróðir hennar Sveinn Ingvarsson.
Hún bjó síðast í Kópavogi. Hún lést 1977.

I. Barnsfaðir Elenóru var Árni Árnason, f. 2. nóvember 1886, d. 4. september 1948.
Barn þeirra:
1. Guðbjörg Áslaug Árnadóttir, f. 15. nóvember 1910, d. 9. júlí 1912.

II. Barnsfaðir Elenóru var Jón Guðmundsson úr Skagafirði, sjómaður, f. 4. september 1891 að Hóli þar, drukknaði í Eyjafirði 3. september 1916.
Barn þeirra:
1. Ráðhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. október 1916, d. 16. maí 2007. Maður hennar Sigurður Gunnlaugsson.

III. Barnsfaðir Elenóru var Júlíus Jónsson af Álftanesi, f. 13. ágúst 1896, d. 18. mars 1985.
Barn þeirra:
2. Alda Sigurrós Júlíusdóttir húsfreyja, verkakona, vann við aðhlynningu, f. 26. ágúst 1928, d. 26. maí 2017. Maður hennar Jón Einarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.