Elísabet B. Guðbjörnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Bjarnveig Guðbjörnsdóttir húsfreyja fæddist 14. október 1914 í Bolungarvík og lést 2. júlí 1990 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Guðbjörn Einar Guðjónsson matsveinn, f. 1. október 1886 á Bæ í Kaldrananessókn, Strand, d. 15. janúar 1949, og Jónína Egilína Sigurðardóttir frá Höfðaströnd í Grunnavíkurhreppi, N.-Ís., húsfreyja, f. 22. apríl 1892 á Steinhólum þar, d. 2. apríl 1965.

Elísabet var með foreldrum sínum á Víkingi á Ísafirði 1920.
Hún flutti ung til Eyja.
Þau Þórarinn giftu sig, eignuðust sex börn, en tvö síðustu börnin fæddust andvana. Þau bjuggu í fyrstu á Háeyri við Vesturveg 11a, síðan í Nýborg við Njarðarstíg 17, en síðat á Háeyri.
Þórarinn lést 1970.
Elísabet bjó á Skjaldbreið við Urðaveg 36 við Gos 1973. Hún lést 1990 í Hraunbúðum.

I. Maður Elísabetar var Þórarinn Anton Jóhann Guðmundsson frá Háeyri, f. 4. júlí 1910, d. 8. nóvember 1970.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Hörður Þórarinsson húsasmíðameistari, f. 10. desember 1936 að Háeyri, d. 26. september 1997.
2. Ásta Guðbjörg Þórarinsdóttir, f. 1. nóvember 1938 í Nýborg.
3. Óskar Þórarinsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 24. maí 1940 í Nýborg, d. 2. nóvember 2012.
4. Þóranna Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 17. mars 1944 í Nýborg. Maður hennar Kristján Guðbjartsson Bergmann, f. 12. nóvember 1942, d. 30. júlí 2022.
5. Andvana drengur, f. 30. desember 1951 að Háeyri.
6. Andvana barn, f. 4. september 1954 að Háeyri.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.