Elísabet Anna Grytvik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Anna Grytvik húsfreyja, einkaþjálfari, læknaritari í Heilsuborg í Kópavogi fæddist 22. janúar 1965.
Foreldrar hennar Willy Grytvik sjómaður, f. 29. júlí 1940 í Svíþjóð, og kona hans Ásta Guðbjörg Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 1. nóvember 1938.

Börn Ástu og Gunnars Rúnars:
1. Jónína Hjördís Gunnarsdóttir, f. 8. júní 1957 á Sj.
2. Pétur Þór Gunnarsson listamaður, f. 12. september 1958. Kona hans Erna Flygenring.
Börn Ástu og Willy Grytvik:
3. Elísa Harpa Grytvik kennari í Noregi, f. 28. mars 1962. Fyrrum maður hennar Gylfi Garðarsson.
4. Samúel Grytvik skrifstofumaður, f. 21. maí 1963. Kona hans Svava Hjartardóttir.
5. Elísabet Anna Grytvik einkaþjálfari, læknaritari, f. 22. janúar 1965. Fyrrum maður hennar Þór Hinriksson.
Barn Ástu og Benoný Bosch:
6. Margrét Ásta Bosch starfsmaður Icelandair, f. 3. febrúar 1966, ógift.
Börn Ástu og Guðmundar Karlssonar:
7. Guðmundur Hörður Guðmundsson upplýsingafulltrúi Háskóla Íslands, f. 1. nóvember 1977. Sambúðarkona hans Ása Briem.
8. Karl Óðinn Guðmundsson starfaði hjá Icelandair, f. 2. október 1982. Kona hans Steinunn Fjóla Birgisdóttir.

Þau Þór giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Elísabet Anna býr í Kópavogi.

I. Fyrrum maður Elísbetar Önnu er Þór Hinriksson knattspyrnuþjálfari, rekur þjálfunarfyrirtækið Battar í Kópavogi, f. 1. júlí 1964 .Foreldrar hans Guðmundur Hinrik Elbergsson, f. 1. febrúar 1927, d. 12. september 1983, og Ragnheiður Ásgeirsdóttir, f. 14. mars 1930, d. 8. febrúar 2020.
Börn þeirra:
1. Arnar Þór Þórsson, f. 29. janúar 1990.
2. Sævar Freyr Þórsson, f. 29. apríl 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.