Elín Þórðardóttir (Stapavegi)
Elín Þórðardóttir húsfreyja, bókari í Kópavogi fæddist 4. júní 1970.
Foreldrar hennar Þórður Magnússon frá Skansinum, verktaki, bifreiðastjóri, f. 17. apríl 1933, d. 9. mars 2021, og kona hans Hrönn Vilborg Hannesdóttir frá Hæli, húsfreyja, f. 22. febrúar 1939.
Börn Vilborgar og Þórðar:
1. Hanna Margrét Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 24. maí 1955. Maður hennar er Óskar Valtýsson.
2. Ósk Þórðardóttir húsfreyja, tannlæknir í Reykjavík, f. 27. júní 1957 í Sætúni. Maður hennar er Kristinn Leifsson.
3. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Garðabæ, f. 5. mars 1964. Maður hennar var Viðar Einarsson.
4. Elín Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 4. júní 1970. Sambýlismaður var Ísólfur Ásmundsson.
Þau Ísólfur hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Elín býr í Kópavogi.
I. Fyrrum sambúðarmaður Elínar er Ísólfur Ásmundsson úr Rvk, smiður, f. 6. júní 1975. Foreldrar hans Ásmundur Eyjólfsson, f. 20. apríl 1941, d. 17. febrúar 2021, og Þuríður Ísólfsdóttir, f. 29. júní 1943.
Börn þeirra:
1. Ísólfur Ísólfsson, f. 2. mars 2005.
2. Hannes Thor Ísólfsson, f. 11. október 2008.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Elín.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.