Eiríkur Guðnason (skólastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Eiríkur Guðnason skólastjóri

Eiríkur Ágúst Guðnason fæddist 28. mars 1933 í Vestmannaeyjum og lést 26. júní 1987.
Foreldrar hans voru Guðni Jónsson formaður, f. 6. júní 1903, d. 13. feb 1944 og Anna Eiríksdóttir frá Vegamótum, f. 24. okt. 1902, d. 4. jan. 1988.

Eiríkur lauk prófi frá Kennaraskóla Íslands 1954, hóf að kenna við Barnaskólann í Vestmannaeyjum sama ár, var yfirkennari frá 1966 til 1976 og skólastjóri frá 1979 til 1987. Hann kenndi einnig sem stundakennari við Iðnskólann í Vestmannaeyjum og Stýrimannaskólann í Eyjum. Hann tók sveinspróf í húsasmíði 1968 og fékk meistararéttindi 1973.
Eiríkur tók virkan þátt í félagsstarfi í Eyjum. Hann var um tíma formaður Knattspyrnufélagsins Týs, í barnaverndarnefnd bæjarins, sóknarnefnd Landakirkju, í stjórn Rauðakrossdeildar Vestmannaeyja og í stjórn kennarafélaga í Eyjum.
Eiríkur var kvæntur Gunnhildi Bjarnadóttur, f. 4. apríl 1935 frá Breiðholti. Dóttir þeirra er Anna Guðný, f. 11. des 1957.