Einar Ragnarsson (bifvélavirki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Einar Ragnarsson.

Einar Ragnarsson frá Stykkishólmi, sjómaður, vélstjóri, bifvélavirki fæddist þar 4. febrúar 1932 og lést 29. júlí 2013.
Foreldrar hans voru Ragnar Hinrik Einarsson sjómaður, verkamaður, f. 15. ágúst 1901 í Stykkishólmi, d. 29. september 1948, og kona hans Sólveig Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1901 í Búðabæ á Búðum í Staðarsveit á Snæf., d. 7. júní 1972.

Einar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann vann við sjómennsku og í vegavinnu.
Einar fluttist til Eyja 1951, var sjómaður, lærði vélstjórn, vann síðar við bifvélavirkjun.
Í Stykkishólmi vann hann við bifvélavirkjun hjá Bílveri, við skipaviðgerðir hjá Skipavík og við vélastörf í Þórsnesi allt til ársins 2000.
Þau Rósa giftu sig 1955, eignuðust fimm börn, en fyrsta barn þeirra fæddist andvana.
Þau bjuggu í fyrstu á Vesturhúsum-Vestri, byggðu húsið við Búastaðabraut 7 ásamt fleiri og bjuggu þar til 1965, er þau fluttu í Stykkishólm. Þau byggðu þar hús við Lágholt 12.
Einar lést 2013. Rósa býr að Lágholti 12.

I. Kona Einars, (25. desember 1955), er Guðmunda Rósa Helgadóttir frá Vesturhúsum, húsfreyja, f. 21. mars 1936.
Börn þeirra:
1. Drengur, f. 21. apríl 1955, d. skömmu eftir fæðingu.
2. Nanna Einarsdóttir starfsmaður í leikskóla, f. 20. febrúar 1957, d. 31. desember 2022.
3. Ragnar Hinrik Einarsson húsasmiður, starfsmaður í álveri, f. 16. júlí 1960. Maki hans Ása Valdís Ásgeirsdóttir.
4. Hafþór Helgi Einarsson húsasmiður, f. 16. ágúst 1966. Maki hans Guðrún Heiðarsdóttir.
5. Sólveig Einarsdóttir verslunarstjóri, f. 9. ágúst 1972. Maki hennar Guðmundur Leifur Kristjánsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.