Edda Snorradóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Edda Snorradóttir.

Edda Snorradóttir húsfreyja fæddist 7. nóvember 1948 á Þórshöfn á Langanesi og lést 28. október 2010.
Foreldrar hennar voru Snorri Hafsteinn Bergsson, f. 18. ágúst 1911, d. 18. maí 1994, og Valgerður Margrét Lárusdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1907, d. 31. mars 1993.

Edda var með foreldrum sínum.
Hún vann ýmis störf á Þórshöfn, m.a. við gæslu barna á dagheimili og afgreiðslu á skemmtistað, en lengst vann hún hjá Kaupfélagi Langnesinga við afgreiðslu og var verslunarstjóri í söluskála þess.
Í Reykjavík vann hún á Landspítalanum, á barnadeild, en frá 1998 á gjörgæsludeild til síðasta dags.
Hún lést 2010.

Þau Þorkell Sævar giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Kirkjuhól við Bessastíg 4 í Eyjum við Gosið 1973, fluttu þá að Þórshöfn á Langanesi, bjuggu þar í 22 ár, en fluttu til Rvk 1995.
Edda lést 2010.

I. Maður Eddu, (19. ágúst 1972), er Þorkell Sævar Guðfinnsson sparisjóðsstjóri, aðalbókari, f. 19. maí 1950.
Börn þeirra:
1. Snorri Hafsteinn Þorkelsson fjármálastjóri, f. 23. júlí 1971. Kona hans Björg Skúladóttir.
2. Guðfinnur Helgi Þorkelsson skrifstofumaður, f. 14. september 1978. Sambúðarkona hans Jóhanna Þorkelsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.