Davíð Ingi Þorsteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Davíð Ingi Þorsteinsson öryrki fæddist 2. maí 1976 og lést 16. júní 2020.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Jónsson skipstjóri, f. 23. ágúst 1949, d. 27. janúar 2021, og sambúðarkona hans Guðríður Hallbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1953, d. 16. júlí 1995.

Börn Guðríðar og Þorsteins:
1. Þórir Þorsteinsson sjómaður, f. 7. ágúst 1972. Sambúðarkona hans Elín Katrín Rúnarsdóttir.
2. Davíð Ingi Þorsteinsson öryrki, f. 2. maí 1976, d. 16. júní 2020.
Börn Guðríðar og Sigtryggs:
3. Guðjón Örn Sigtryggsson iðnaðarmaður í Hafnarfirði, f. 6. febrúar 1989. Sambúðarkona hans Mary Sicat, ættuð frá Filippseyjum.
4. Hlynur Sigtryggsson sjómaður, stýrimaður, f. 28. ágúst 1993. Kona hans Fanndís Ómarsdóttir.

Davíð var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.