Bryndís Stefánsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bryndís Stefánsdóttir, með masterspróf í spænsku, framhaldsskólakennari, fjarkennari í spænsku við Menntaskólann í Ólafsfirði, fæddist 27. maí 1981 í Eyjum.
Foreldrar hennar Stefán Þorsteinsson, f. 10. júní 1956, og Marín Eiðsdóttir, verkakona, f. 6. nóvember 1962.
Fósturforeldrar hennar voru móðurforeldrar hennar Sigurborg Engilbertsdóttir, f. 9. júlí 1944 og Eiður Sævar Marinósson, f. 30. ágúst 1939, d. 15. desember 2000,.

Þau Árni hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Bryndís býr við Hrauntún 18.

I. Fyrrum sambúðarmaður Bryndísar er Árni Gunnarsson, sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, f. 7. nóvember 1976.
Börn þeirra:
1. Gunnar Árnason, f. 24. júlí 2013.
2. Eiður Sævar Árnason, f. 18. september 2014.
3. Daníel Árnason, f. 12. júní 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.