Bryndís Jónsdóttir (íþróttafræðingur)
Bryndís Jónsdóttir húsfreyja, íþróttafræðingur, kennari, fæddist 9. janúar 1995 í Eyjum.
Foreldrar hennar Sigríður Ragnarsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 21. febrár 1960, og maður hennar Jón Oddsson húsgagnasmiður, f. 14. júní 1958, d. 3. ágúst 2003.
Börn Sigríðar og Jóns:
1. Ragna Kristín Jónsdóttir leikskólakennari á Akureyri, f. 27. apríl 1982 á Akureyri. Maður hennar er Jóhann Rúnar Sigurðsson.
2. Hafþór Jónsson kennari, starfsmaður Íþróttahússins, sjómaður, f. 11. ágúst 1988. Kona hans er Linda Ósk Hilmarsdóttir.
3. Bryndís Jónsdóttir íþróttafræðingur, kennari, f. 9. janúar 1995. Maður hennar Sindri Valtýsson.
Þau Sindri giftu sig, hafa eignast eitt barn. Þau búa við Áshamar 41.
I. Maður Bryndísar er Sindri Valtýsson þungavinnuvélastjóri, f. 9. ágúst 1989.
Barn þeirra:
1. Sunna Móey Sindradóttir, f. 22. ágúst 2022.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sindri og Bryndís.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.