Brimhólalaut
Brimhólalaut, öðru nafni Brimhólaflöt, er svæði vestan Brimhóla við Illugagötu þar sem Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja er staðsett. Áður en íþróttamiðstöðin var byggð og vígð árið 1976 var fjölbreytt notkun á svæðinu langt aftur.
Á nítjándu öld var svæðið notað af Herfylkingunni því að þar ,,voru sléttar og harðar valllendisgrundir og mjög hentugar fyrir æfingar." Þann 17. júní 1911 efndu Vestmannaeyingar efnt til samkomu vestur á Brimhólaflöt til þess að minnast aldarafmælis Jóns Sigurðssonar. Hornaflokkur Vestmannaeyja (upphaflegt heiti á Lúðrasveit Vestmannaeyja) lék þar nokkur tónverk.
Þrettándagleði var haldin á svæðinu á árunum á seinni hluta nítjándu aldar. Gengið var um bæinn og safnað fólki saman með trommuslætti. Segir svo í Ritverki Árna Árnasonar:
Í blysförinni sjálfri var gengið inn á Brimhóla, og gengu tveir og tveir saman. Allir báru blys og logaði glatt í þeim. Þegar svo komið var inn á Brimhólaflöt, var þar tendraður bálköstur mikill, og gengu blysberar í hring kringum bálið og sungu við raust álfasöngva og fleira og dönsuðu margskonar vikivakadansa. Var spilað undir á harmoniku til þess að leiða og raddfesta sönginn. Þetta voru fólkinu ógleymanlegar skemmtanir, enda voru þær mjög fjölsóttar af ungum og gömlum.
Á fyrri hluta tuttugustu aldar var ,,siður unga fólksins að fara inn í Brimhólalaut um björt sumarkvöldin og dansa þar eftir grammófónmúsík eða fara í ýmsa leiki." Íþróttaiðkun fór þar líka snemma fram. Í Þjóðhátíðarblaði Týs árið 1963 sagði Júlíus Snorrason svo frá:
Þannig vildi til, að nokkrir Þórsstrákar höfðu keypt sér kastáhöld, og voru að spreyta sig inni í Brimhólalaut. Ég varð strax hrifinn af kringlunni, en átti enga. Datt okkur félögum í hug að nota mætti járntannhjól úr blökk í stað kastkringlunnar, það var að vísu ekki vel lagað til flugs, an mátti nota hana til æfinga. Á þessu hjóli æfðum við okkur í lautinni. Það mátti eins spreyta sig á því sem öðru.
Nautgripum var einnig beitt á svæðinu auk þess sem þar var leikvöllur fyrir börn.
Heimildir
- Saga Vestmannaeyja I./ XIII. Herfylking Vestmannaeyja, 3. hluti
- Ritverk Árna Árnasonar/Erindi um Örn Arnarson
- Ritverk Árna Árnasonar/Bændaheimili í Eyjum um 1880-1890
- Þjóðhátíðarblað Týs 1963. Fengið af https://timarit.is/page/7858880#page/n21/mode/2up
- Brimhólaflatir í Vestmannaeyjum. Fengið af https://afangar.com/byggdasaga/brimholaflatir/