Blik 1969/Minningar þriggja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1969


ÞORSTEINN L. JÓNSSON:


Minning þriggja


ctr


Sigurgeir Halldór Adólfsson, f. 24. des. 1959, d. 18. ágúst 1967. Foreldrar: Adólf Sigurgeirsson járnsmiður og kona hans, Anna Jenný Marteinsdóttir, Grænuhlíð 25.


ctr


Vigfús Adólfsson, f. 18. ágúst 1955, d. 21. júlí 1967. Foreldrar: Adólf Óskarsson pípulagningamaður og kona hans Ásta Vigfúsdóttir, Heiðarvegi 50.


ctr


Jón Viðar Sigurðsson, f. 27. marz 1959, d. 8. sept. 1967. Foreldrar: Sigurður Jónsson skipstjóri og kona hans, Kristborg Jónsdóttir, Hásteinsvegi 53.


Þessir þrír ungu piltar létust með stuttu millibili. Vigfús og Jón Viðar af slysförum, en Sigurgeir Halldór á sóttarsæng. Það féll í minn hlut að jarðsyngja þá, en slíkar athafnir snerta okkur prestana djúpt. Þær verða aldrei að atvinnuíþrótt, eins og sumir halda. Þar hefur viðkvæmnin völdin og þá kemst ekkert þvílíkt að.

Við fráfall þessara ungu vina varð ljóð þetta til og er tileinkað þeim öllum jafnt og sem einn væri.

Við dagsbrún dagur rís,
þinn, Drottinn, ljómi skín,
er almættisins opinberast
undrin þín.
Þú skapar liljulauf
og lauksins gróðurmátt
og blíðri andar blessun þinni
á barnið smátt.
Hvert daggartárið tært,
sem titrar degi mót,
fær eðalsteinsins aðalsglit
við innstu rót.
Og tárin okkar tær,
af tryggð sem fellum hér,
þau gæða okkur göfgri þrá
að gefast þér.
Þú, Guð, ert ljóssins líf,
þitt líf með brosi skín, -
í litlu barni birtast okkur
brosin þín.
Við fyrstu spor er spurt,
hvert sporin leiði hann,
hvort lífið megi láni krýna
lítinn mann.
Hann er sem blómið blítt,
sem brosir glatt og hreint
og ilmar jafnframt angansætt,
en engum meint.
Hann öllu fögru ann
og elskar sól og vor.
Að elska er hans innsta þrá
hvert ævispor.
Og björtu brosin hans,
þau benda glöggt þar á,
að Guð í honum eigi ítök,
ekki fá,
því innra auðlegð býr,
sem andans þroska fær,
af því að vilja vera bróðir
vinakær.
Við þökkum góða gjöf.
Hann glæddi okkar hag
og vakti okkur vonarstjörnu
og vonarlag,
að langa framtíð fram
hann fengi að lifa hér,
í drengja röskra settur sveit
og sóma sér.
En sköpum hér er skipt,
það skiljast leiðir nú,
en gef oss trú, sem treystir þér,
er tekur þú.
Nú deprast dagsins ljós
við drengsins héðanferð,
en náð þín gefi nýjan dag
með nýrri gerð.
Þótt stund hans yrði stutt,
er stóð hann hérna við,
annars heims hann unir dátt
við ástríkið.
Við þangað saman byggjum
úr bænarlogans glóð,
brú er hvelfist ofar harmasút
og heljarslóð.
Séra Þorsteinn Lúther Jónsson