Blik 1959/Þorkell Valdimar Ottesen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1959



JÓHANN GUNNAR ÓLAFSSON, bæjarfógeti:
Valdimar Ottesen, kaupmaður.




Þorkell
Valdimar
Ottesen
kaupmaður í Reykjavík og Vestmannaeyjum




Hann var fæddur 14. 4. 1868, en dó í Reykjavík 13. 11. 1918.
Foreldrar hans voru Oddur Stefán Ottesen tómthúsmaður á Ofanleiti í Reykjavík og kona hans Guðbjörg Gísladóttir. Oddur var sonur Valdimars Ottesen sjómanns í Reykjavík og Elísabetar (Elsu) Ingimundardóttur, konu hans í Ofanleiti. Valdimar var sonur Lárusar Ottesen kaupmanns í Reykjavík, sonar Odds Stefánssonar notarius við yfirréttinn, hálfbróður Ólafs stiftamtmanns.
Valdimar ólst upp í Reykjavík og byrjaði ungur að fást við verzlunarstörf. Starfaði hann um skeið í verzlun Eyþórs Felixsonar þar. Um tvítugt fluttist hann til Keflavíkur og varð þar verzlunarmaður við Duus-verzlun, sem Ólafur Ásbjörn Ólafsson var þá verzlunarstjóri fyrir. Þar kvæntist Valdimar Sigríði Eyjólfsdóttur Eyjólfssonar bónda á Ytri-Grímslæk í Ölfusi árið 1888, þá tvítugur að aldri. Árið 1891 fluttust þau til Reykjavíkur og þar starfaði Valdimar um skeið sem bókhaldari við verzlun Jóns Þórðarsonar. Árið 1903 hóf Valdimar sjálfstæðan verzlunarrekstur í Reykjavík, en það fyrirtæki mun ekki hafa blessazt, því að 1908 er hann kominn til Vestmannaeyja og orðinn starfsmaður við Austurbúðina, eign J.P.T. Bryde. Hann starfaði þar síðan nokkur ár, en setti síðan á fót eigin verzlun og rak hana um skeið af miklu kappi. Keypti hann húseignina Þingvelli og stofnaði til verzlunarreksturs þar, sem hann nefndi Vísi. Um skeið blómgaðist verzlun hans vel, enda var hann mesta lipurmenni. En hann varð að hætta atvinnurekstri sínum 1917. Þá hóf hann útgáfu fréttablaðsins Fréttir, sem var fyrsta blað í Vestmannaeyjum. Það var fjölritað og komu út um stutt skeið, alls 10 (?) blöð.
Valdimar var glaðsinna og vinsæll. Sem dæmi um það má nefna, að á silfurbrúðkaupsdegi þeirra hjóna kom Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Brynjúlfs Sigfússonar heim að húsi þeirra og lék brúðkaupssálma í tilefni af hátíð þeirra.
Valdimar og Sigríður eignuðust þessi börn: Odd Stefán, sem mun hafa dáið ungur. Ólaf Ásbjörn, heitinn eftir Ólafi verzlunarstjóra í Keflavík. Hann var ágætur leikari og lék mikið í Vestmannaeyjum. Hann dó rúmlega þrítugur árið 1921. Kona hans var Þórunn, dóttir séra Páls Stephensens í Holti í Önundarfirði. Eyjólf Bjarna, matsmann í Eyjum, nýlega látinn. Kona hans var Emelía Ottesen. Sigríði Guðbjörgu, konu Kristjáns Gíslasonar á Hól. Þau skildu. Elsu Ástu, sem dó uppkomin. Hún var lagleg stúlka og þótti efni í góða leikkonu.

J.G.Ó.


Við þetta greinargóða æviágrip, sem Jóh. Gunnar Ólafsson, bæjarfógeti á Ísafirði, hefir sent Bliki, er fáu einu að bæta.
Eins og J.G.Ó. tekur fram, verzlaði Valdimar Ottesen í húseigninni Þingvöllum hér í bæ. Hús þetta stóð þá norðar en nú er. Var það fært og sett á háan kjallara fyrir nokkrum árum.
Verzlunin var á mestum hluta miðhæðar hússins, og gengið inn í hana um miðja norðurhliðina. Sjálfur bjó Valdimar kaupmaður á þakhæð hússins með fjölskyldu sína.
Verzlunin Vísir var matvöruverzlun. Einnig keypti Valdimar kaupmaður fisk upp úr salti og seldi til útlanda.
Í febrúarmánuði 1917 hóf Valdimar kaupmaður að gefa út blað hér í bæ, eins og J.G.Ó. getur um. Blaðið nefndi hann Fréttir, það var ýmist skrifað eða fjölritað, og selt á götunum á 5 aura. ,,Fréttir fyrir fimm aura, Fréttir fyrir fimm aura,“ hrópuðu sölubörnin á götum kauptúnsins (kaupstaður 1918).