Blik 1939, 4. tbl./Gullkorn
Fara í flakk
Fara í leit
Gullkorn.
1. des. ár hvert hafa nemendur gagnfræðaskólans ársfagnað sinn. Þá er glatt á hjalla í skólanum, eins og reyndar oftar, margar ræður fluttar, söngvar sungnir, dansað, leikið og látið fram í dögun.
1. des. s.l. þegar hátíðin stóð sem hæst, barst okkur eftirfarandi símskeyti:
„Til nemenda og kennara
Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum:
- Heill hverjum sól- og sumarhug,
- er setur merkið hátt,
sem þroskar vilja, vit og dug, - sem vísar öllu lágu á bug,
en velur sínum vængjum flug - um vorloft draumablátt,
í trúnni á Guð og trausti á eigin mátt.
- Heill hverjum sól- og sumarhug,
Höfundurinn er Loftur Guðmundsson kennari hér í Eyjum.
Erindið er gullkorn, sem skólinn vill gjöra að kjörorði sínu og skólasöng.
Slík skeyti, slíkar sendingar, eru kærkomnar. Og sannleikurinn er sá, að gagnfræðaskólinn hér hefir ekki frá upphafi átt svona skeytum að fagna fyr.
Alúðar þakkir, Loftur, fyrir þína sólarsýn og þinn sumarhug.