Bjarni Karlsson

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Bjarni og Jóna Hrönn.

Séra Bjarni Karlsson er fæddur 6. ágúst 1963. Hann var prestur í Vestmannaeyjum frá 1991 til ársins 1998 ásamt konu sinni, Jónu Hrönn Bolladóttur. Þau eiga þrjú börn: Andra, Matthildi og Bolla.

Bjarni er nú prestur í Laugarneskirkju. Árið 2005 hlaut Bjarni foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir frábær störf hans í þágu barna, foreldra og skóla í Laugarneshverfi.