Birkir Guðsteinsson
Birkir Guðsteinsson handboltaþjálfari fæddist 7. apríl 1996.
Foreldrar hans Guðsteinn Hlöðversson frá Litlu- Hildisey í A-Landeyjum, verkamaður, f. 4. janúar 1970, og sambúðarkona hans Svandís Þórhallsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, sérkennari á Hvolsvelli, f. 13. maí 1972.
Börn Svandísar og Guðsteins:
1. Fjölnir Guðsteinsson, flugvirki, f. 20. maí 1992. Sambúðarkona hans Áslaug María Scheving Bergdaggardóttir.
2. Birkir Guðsteinsson, þjálfari, f. 7. apríl 1996. Sambúðarkona hans Bergþóra Sól Gunnarsdóttir.
Þau Bergþóra hófu sambúð, hafa eignast eitt barn. Þau búa í Rvk.
I. Sambúðarkona Birkis er Bergþóra Sól Gunnarsdóttir húsfreyja, launaráðgjafi, f. 12. febrúar 1998. Foreldrar hennar Gunnar Halldór Gunnarsson, f. 13. október 1958, og Edda Petrína Ólafsdóttir, f. 2. október 1959.
Barn þeirra:
1. Sólon Birkisson, f. 4. júní 2024.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Birkir.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.