Berta Engilbertsdóttir (Hilmisgötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Berta Guðrún Engilbertsdóttir.

Berta Guðrún Engilbertsdóttir frá Hilmisgötu 3, húsfreyja, bókari, skrifstofustjóri fæddist 25. apríl 1926 í Þinghól við Kirkjuveg 11 og lést 23. desember 2013. Foreldrar hennar voru Engilbert Gíslason málarameistari, listmálari, f. 12. október 1877 í Júlíushaab, d. 7. desember 1971, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir frá Borg á Mýrum, A.-Skaft., húsfreyja, f. 18. ágúst 1886, d. 6. maí 1965.

Börn Guðrúnar og Engilberts voru:
1. Gísli Engilbertsson, f. 23. ágúst 1914 á Kirkjulandi, d. 3. desember 1918.
2. Sigurður Engilbertsson, f. 27. febrúar 1916 á Kirkjulandi, d. 27. febrúar 1916.
3. Sigurður Engilbertsson, f. 7. júlí 1917 í Langholti, d. 13. apríl 1918.
4. Gísli Engilbertsson, f. 28. apríl 1919 í Þinghól, d. 2. mars 2002.
5. Ásta Engilbertsdóttir húsfreyja, síðar í Danmörku, f. 15. júní 1922 í Þinghól, d. 21. desember 2002.
6. Ragnar Engilbertsson málari, verslunarmaður, f. 15. maí 1924 í Þinghól, d. 6. desember 2016.
7. Berta Guðrún Engilbertsdóttir húsfreyja, bókari, skrifstofustjóri í Reykjavík, f. 25. apríl 1926 í Þinghól, d. 23. desember 2013.

Berta var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1942, nam í húsmæðraskólanum í Sorö í Danmörku 1947.
Berta vann á skrifstofu Hraðfrystistöðvarinnar að loknu gagnfræðaprófi, flutti til Reykjavíkur um 1948, vann á Endurskoðunarstofu Árelíusar Ólafssonar. Árið 1963 hóf Berta störf hjá Globus hf., var aðalbókari og síðar skrifstofustjóri.
Hún dvaldi síðustu þrjú árin á Hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Þau Eyjólfur giftu sig 1951, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu m.a. í Gnoðarvogi, á Rauðalæk og við Sléttuveg í Reykjavík.
Berta lést 2013 og Eyjólfur 2015.

I. Maður Bertu, (10. mars 1951), var Eyjólfur Davíðsson klæðskeri, síðan aðalgjaldkeri hjá Skipaútgerð Ríkisins, f. 28. október 1924 í Flatey á Breiðafirði, d. 29. desember 2015. Foreldrar hans voru Davíð Kristján Einarsson verslunarmaður, síðar verslunarstjóri og kaupmaður í Ólafsvík, f. 19. desember 1882 á Geirseyri við Patreksfjörð, d. 22. apríl 1970, og kona hans Sigríður Eyjólfsdóttir frá Sviðnum á Breiðafirði, húsfreyja, f. 23. júní 1886, d. 27. ágúst 1943.
Börn þeirra:
1. Héðinn Eyjólfsson, MSc-viðskiptafræðingur, f. 10. júlí 1951 á Hilmisgötu 3. Kona hans Guðrún H. Fjalldal.
2. Guðrún Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja, lyfjafræðingur f. 3. júlí 1954 í Reykjavík. Maður hennar Snjólfur Ólafsson, stærðfræðingur.
3. Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja, lyfjafræðingur, f. 24. ágúst 1955 í Reykjavík. Fyrrum maður hennar Björn Jóhannsson. Maður hennar Ólafur Ó. Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.