Bergþóra Gunnbjört Kristinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bergþóra Gunnbjört Kristinsdóttir.

Bergþóra Gunnbjört Kristinsdóttir frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, húsfreyja fæddist 17. febrúar 1933 á Síðu í Refasveit, A.-Hún. og lést 22. maí 2012 á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Foreldrar hennar voru Kristinn Bjarnason frá Neðri-Sýruparti á Akranesi, hagyrðingur, bóndi, bifreiðastjóri í Eyjum, bóndi í í Borgarholti í Biskupstungum, f. 19. mars 1892, d. 12. júlí 1968, og kona hans Guðfinna Ástdís Árnadóttir húsfreyja, f. 19. nóvember 1903, d. 5. október 1990.

Börn Guðfinnu og Kristins:
1. Jóhanna Árveig Kristinsdóttir húsfreyja í Borgarholti í Biskupstungum, síðar á Akureyri, f. 14. desember 1929 á Grund, d. 8. júlí 2002. Maður hennar var Jón Óli Þorláksson, f. 15. maí 1924, d. 2. febrúar 1982.
2. Bergþóra Gunnbjört Kristinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. febrúar 1933, d. 22. maí 2012, var gift Benedikt Bjarna Kristjánssyni, f. 26. september 1935.
3. Hrafnhildur Kristinsdóttir húsfreyja, fulltrúi í Garðabæ, f. 22. mars 1935 í Hjarðarholti. Maður hennar er Sigurður Axelsson, f. 29. júlí 1932.
4. Guðlaug Ásrún Kristinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 11. júlí 1936 í Eyjum, d. 15. júní 1998. Hún var gift Rósant Hjörleifssyni, f. 21. ágúst 1933.
Börn Kristins áður:
5. Ásgrímur Kristinsson bóndi og skáld á Ásbrekku í Vatnsdal, verkamaður í Reykjavík, f. 29. desember 1911, d. 20. ágúst 1988.
6. Ásdís Kristinsdóttir húsfreyja, verkakona, síðast í Kópavogi, f. 22. júlí 1912, d. 7. ágúst 1991.
7. Gunnar Kristinsson bifreiðastjóri, fangavörður í Reykjavík, f. 23. september 1913, d. 11. janúar 1982.
8. Bjarni Kristinsson húsmaður á Kornsá í A.-Hún. og Stöðlum í Ölfusi, síðar verkamaður á Selfossi, f. 28. apríl 1915, d. 18. febrúar 1982.
9. Aðalheiður Jóhanna Kristinsdóttir, vinnukona, bjó síðar í Svíþjóð, f. 18. maí 1916, d. 11. nóvember 2014.
10. Benedikt Ragnar Kristinsson sjómaður, flutti til Höfðaborgar í Suður- Afríku, f. 18. mars 1921, d. 15. ágúst 2000.
11. Sigríður Ingibjörg Kristinsdóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 24. apríl 1925, d. 17. september 2008.

Bergþóra var með foreldrum sínu í æsku, á Síðu í Refasveit og í Hjarðarholti, flutti með þeim að Borgarholti í Biskupstungum 1940 og síðar til Reykjavíkur.
Hún vann ung við Íþróttaskólann í Haukadal í Biskupstungum að vetrinum, en var í kaupavinnu í Bræðratungu og í Króki að sumrinu. Síðan vann hún í Hressingarskálanum í Reykjavík. Hún vann síðar hjá Sanítas gosdrykkjaverksmiðjunni.
Þau Benedikt giftu sig 1958, eignuðust fjögur börn.
Benedikt lést 2009 og Bergþóra 2012.

I. Maður Bergþóru, (17. febrúar 1958), var Benedikt Bjarni Kristjánsson bifreiðastjóri, f. 26. september 1935, d. 7. maí 2009. Foreldrar hans voru Kristján Magnús Þórðarson bifreiðastjóri, f. 9. janúar 1911, d. 27. desember 1959, og kona hans Svava Bjarnadóttir húsfreyja, f. 2. júní 1910, d. 16. september 1989.
Börn þeirra:
1. Svava Benediktsdóttir húsfreyja, f. 16. desember 1954. Maður hennar Guðmundur Birgir Salómonsson.
2. Ágúst Benediktsson, f. 10. maí 1956. Kona hans Sigríður Margrét Sigurðardóttir.
3. Gréta Benediktsdóttir húsfreyja, f. 2. desember 1958. Maður hennar Kristján Knútsson.
4. Ásta Benediktsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1960. Maður hennar Sigmar Arnar Steingrímsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.