Bergþóra Þórhallsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bergþóra Þórhallsdóttir fæddist 13. febrúar 1964. Foreldrar hennar eru Þórhallur Ármann Guðjónsson og Svala Ingólfsdóttir sem er látin. Bergþóra á þrjú systkini, Ingibjörgu, Jón Óskar og Svandísi. Bergþóra er í sambúð með Baldri Dýrfjörð og á hún fjögur börn. Börn hennar eru Gísli Steinar f. 1984, Svala f. 1987, Telma f. 1993 og Björk f. 1995. Bergþóra ólst upp á Reykjum við Vestmannabraut en eftir að hún eignaðist sjálf fjölskyldu bjó hún meðal annars á Birkihlíð og í Hrauntúni.

Bergþóra lauk námi í Barnaskóla Vestmannaeyja og fór síðar í Kvennaskólann í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi lauk hún kennaraprófi og starfaði lengi sem slíkur í Hamarsskóla. Þegar Viska símenntunarstöð var stofnuð var Bergþóra ráðin forstöðumaður þar sem hún starfaði til ársins 2005.

Þegar Bergþóra var yngri lék hún handbolta með Knattspyrnufélaginu Tý. Bergþóra var félagi í Kaffihúsakór Landakirkju og var virk í starfi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Árið 2006 kennir Bergþóra við Giljaskóla á Akureyri þar sem hún er búsett.