Arnþór Helgi Hálfdánarson
Arnþór Helgi Hálfdánarson, bifreiðastjóri, rak útibú Nesdekks, fæddist 17. ágúst 1957 í Eyjum.
Foreldrar hans Hálfdán Ágúst Jónsson, bifreiðastjóri í Rvk, f. 12. febrúar 1933, d. 12. maí 2010, og kona hans Ásrún Björg Arnþórsdóttir, húsfreyja, f. 26. mars 1937, d. 6. október 2017.
Börn Ásrúnar Bjargar og Hálfdánar Ágústs:
1. Arnþór Helgi Hálfdánarson, f. 17. ágúst 1957 í Eyjum. Fyrri kona hans Guðrún Júlía Jensdóttir. Kona hans Guðlaug Bernódusdóttir.
2. Ágústa Björg Hálfdánardóttir, f. 17. ágúst 1957 í Eyjum. Barnsfaðir Guðmundur Oddbergsson. Maður hennar Guðni Agnarsson.
3. Gunnhildur Hálfdánardóttir, f. 11. nóvember 1958 í Eyjum. Maður hennar Guðmundur Karvel Pálsson.
4. Jón Víkingur Hálfdánarson, f. 24. júní 1961. Kona hans Sigríður Erlendsdóttir.
5. Anna Margrét Hálfdánardóttir, f. 28. október 1962. Fyrri maður hennar Jón Bergmann Skúlason. Maður hennar Guðbergur Guðnason.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau skildu.
Þau Guðlaug giftu sig, eignuðust ekki börn. Þau búa í Danmörku.
I. Fyrrum kona Arnþórs er Guðrún Júlía Jensdóttir, húsfreyja f. 21. júlí 1958. Foreldrar hennar Jens Jakob Hallgrímsson, f. 9. maí 1932, d. 16. nóvember 2023, og Ingveldur Guðrún Ágústsdóttir, f. 11. maí 1930.
Börn þeirra:
1. Ásrún Björg Arnþórsdóttir, f. 26. október 1982.
2. Jenný Rut Guðrúnardóttir, f. 2. febrúar 1985.
3. Óðinn Örn Arnþórsson, f. 23. júlí 1988.
4. Ingvar Ágúst Arnþórsson, f. 12. febrúar 1996.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ágústa Björg.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.