Anna María Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anna María Sigurðardóttir húsfreyja í Rvk fæddist 16. febrúar 1965.
Foreldrar hennar voru Sigurður Friðhólm Sveinbjörnsson múrarameistari, f. 5. september 1923, d. 31. október 1990, og kona hans Rebekka Katrín Hagalínsdóttir húsfreyja, f. 15. september 1923, d. 25. mars 2017.

Börn Rebekku og Sigurðar:
1. Matthildur Sigurðardóttir húsfreyja á Háeyri, síðar á Hásteinsvegi 51 í Eyjum, f. 13. desember 1947. Fyrrum maður hennar Björgvin Sigurjónsson.
2. Herdís Sigurðardóttir húsfreyja í Danmörku, f. 20. apríl 1949. Maður hennar Valur Valsson.
3. Rannveig Sigurðardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. september 1950. Sambúðarmaður Heiðar Páll Halldórsson.
4. Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson sjómaður í Eyjum, f. 6. september 1954.
5. Anna María Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. febrúar 1965. Maður hennar Finnbogi Ragnar Ragnarsson.

Þau Finnbogi Ragnar giftu sig, eiga þrjú börn. Þau búa í Reykjanesbæ.

I. Maður Önnu Maríu er Finnbogi Ragnar Ragnarsson kerfisfræðingur, f. 28. ágúst 1965. Foreldrar hans Ragnar og Jóhanna María Finnbogadóttir, f. 12. desember 1948.
Börn þeirra:
1. Sigurður Óttar Ragnarsson, f. 19. ágúst 1984.
2. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, f. 7. desember 1987.
3. Ragnar Freyr Ragnarsson, f. 23. september 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.